Mataræði
Er eitthvað samhengi milli mataræðis og sterkra tanna?
Rangt mataræði getur stuðlað að tannskemmdum. Til að sporna gegn þeim er ráðlegast að
borða hollan og góðan mat, sætindi í hófi en bursta tennur vel með flúortannkremi. Í raun er flúor eina
efnið sem vitað er með vissu að hefur áhrif á styrkleika glerungs á tönnum. Kalk og önnur steinefni, sem
áður voru talin nauðsynleg, hafa ekki áhrif á styrkleika tanna eftir að þær eru fullmyndaðar.
Skiptir máli hvort maður notar sykrað álegg á brauð eða ekki?
Öll sætindi hafa áhrif á tannheilsu; ætandi áhrif. Þess vegna er mikilvægt að hreinsa munninn eftir neyslu sætinda. Sé það gert skiptir ekki meginmáli fyrir tennurnar þótt þú fáir þér til dæmis brauð með sultu. Sé það ekki gert hefur fjöldi þeirra skipta sem þú borðar sætindi yfir daginn áhrif, til dæmis át milli mála. Þess vegna er það betra fyrir tennurnar að borða aðeins á föstum matmálstímum heldur en sitt lítið af hverju með stuttum hléum allan liðlangan daginn!
Hefur sykraður safi áhrif á tennheilsu?
Já, en það skiptir líka máli hvernig hans er neytt. Með reglulegum máltíðum er í lagi að drekka safa, en sé hann drukkinn í smáum skömmtum allan daginn, eykst hætta á tannskemmdum. Þetta á sérstaklega við um þá sem þjást af munnþurrki. Þá er skárra að velja heldur sykurlausa drykki. Íslenska vatnið er best!
Mynd












