Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Afhverju breytist litur á tönnum?

Af hverju breytist litur á tönnum?
Það er eðlilegt að tennur dökkni með árunum. Þær verða oft gulari eða gulbrúnni að lit. Sá litur kemur oftast innan frá. Dæmi um innri litun er litun af völdum lyfja sem tekin eru þegar tennur eru í myndun (tetracyclin) og litun vegna sjúkdóma í kviku tannarinnar. Litur sem kemur utan frá getur verið af völdum tóbaks, kaffidrykkju og tedrykkju. Einnig geta ákveðin lyf s.s. klórhexidín litað tennur. Oft má fjarlægja þennan lit burt með því að pússa tennurnar.Er hægt að gera tennur hvítari?
Já oft er það hægt. Ef litunin er af völdum sjúkdóms í kviku tannarinnar, má hreinsa hana. Algengast er að gera tennur hvítari með sérstökum efnum, sem þú færð hjá tannlækni þínum. Þá er smíðaður gómur sem passar nákvæmlega yfir þínar tennur. Efnið er sett í góminn og stundum látið vera yfir nótt. Aldrei skyldi framkvæma þessa meðferð nema að höfðu samráði við tannlækni og undir hans leiðsögn.

Sjá einnig Ráð og leiðbeiningar um heilsu og vellíðan á Doktor.is


Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «Febrúar 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar