Andremma og munnþurrkur
Andremma á oft rætur sínar að rekja til ástands í munni. Minnkað munnvatnsflæði er mikilvægasta orsökin. Tannholdsbólgur og tannvegssjúkdómar geta einnig valdið andremmu. Mikilvægt er að leita til tannlæknis og fá úr því skorið hvort ástæðan sé í munnholinu. Góð munnhirða og sykurlaust tyggigúmmí geta einnig hjálpað til.
En fyrir munnþurrki geta verið margar ástæður. Mörg lyf hafa áhrif á munnvatnskirtlana, þ.a. munnvatnsflæðið minnki. Dæmi um slík lyf eru þunglyndislyf, ofnæmislyf og þvagræsilyf. Ákveðnir sjúkdómar s.s. lifrarsjúkdómar, hormóna- og efnaskiptasjúkdómar o.fl. geta einnig haft áhrif þannig að munnvatnsflæði minnki. Hár hiti, vannæring og fasta geta einnig valdið munnþurrki. Geislameðferð á höfði og hálsi getur valdið munnþurrki, svo og áverkar eða sjúkdómar í munnvatnskirtlunum sjálfum.
Eru einhver ráð við munnþurrki?
Það eru tvær leiðir; annars vegar að auka seytrun munnvatnskirtla og hins vegar að nota gervimunnvatn.
Flestum finnst auðveldara að auka seytrun munnvatnskirtla. Það er gert með hjálp sykurlauss tyggigúmmís svo og töflum, ásamt flúortöflum. Mikilvægt er að drekka mikið vatn. Gæta skal þess að nota ekki sogtöflur eða tyggigúmmí sem inniheldur sykur; það er mjög slæmt fyrir tennurnar. Það eru til sérstakar töflur til að nota í þessum tilgangi og fást þær í lyfjabúðum. Best er fyrir þig að ráðfæra þig við tannlækninn þinn svo og starfsfólkið í lyfjabúðinni.
Hvaða áhrif hefur munnþurrkur á tannheilsu mína?
Það að vera með munnþurrk eykur verulega hættu á tannskemmdum. Munnvatn hefur mjög verndandi áhrif á tennur og án munnvatns standa tennur og tannvegur berskjölduð fyrir tannskemmdum og tannholdsbólgum. Mikil og öflug tannhirða er nauðsynleg auk tíðari heimsóknir til tannlæknis; flúortöflur, flúorskol og tyggigúmmí eru einnig nauðsynleg hjálpartæki.
Sjá nánar fræðsluefni Tannverndarráðs um munnþurrk.
Mynd












