Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Bitsjúkdómar

Þegar samanbit er heilbrigt og eðlilegt er samstarf gott milli tanna, tyggingarvöðva og kjálkaliða.
Það skiptir miklu máli að svo sé, þegar fólk tyggur, talar, syngur, geispar, kyngir og brosir.

Hvað getur raskað þessari samhæfingu?
- Ef fólk missir nokkrar tennur
- Ef tennur eru skakkar og þvinga samanbitið
- Ef fólk gnístir eða pressar saman tönnum
- Ef samanbit er of lágt eða óstöðugt
- Ef gervitennur eru lélegar
- Ef fólk verður fyrir höggi

Við slíkar aðstæður geta bitsjúkdómar gert vart við sig!
Hver eru þá helstu einkenni bitsjúkdóma?
- Höfuðverkur og eyrnaverkur
- Eymsli og þreyta í kinnum og kjálkum
- Sársauki og óþægindi við tyggingu og mikla opnun
- Slitfletir á tönnum og aumar tennur

Hvað er þá til ráð a?
Leitaðu til tannlæknis og hann mun skoða eftirfarandi:
- Eru tyggingarvöðvar aumir?
- Er eðlileg hreyfigeta í kjálkaliðum; heyrast smellir í þeim?
- Er samanbit tanna eðlilegt?
- Eru tennur aumar og slitnar af gnísti?

Hvaða meðferð er hægt að beita?
Meðferðin sem beitt er er kölluð bitmeðferð. Hún felst í því að viðkomandi fær bithlíf sem er harður glær gómur, sem minnkar álag af kjálkaliðum og tyggingarvöðvum og skapar stöðugt samanbit. Flestir sem fara í meðferð við bitsjúkdómum fá slíka bithlíf. Tannlæknirinn tekur mát af báðum gómum og smíðar síðan góm sem oftast er settur í efri góm. Yfirleitt nægir að hafa hann uppi á nóttunni. Ásamt notkun bithlífar þarf fólk að gera æfingar til slökunar og þjálfunar fyrir kjálkaliði og tyggingarvöðva. Margir eru sendir til sjúkraþjálfara sem meðhöndla vöðvabólgu í tyggingarvöðvum og hnakka, herðum og hálsi og takmarkaða hreyfigetu í kjálkaliðum. Gigtarlyf og verkjalyf eru notuð í slæmum tilfellum.
Þegar sjúkdómseinkenni hverfa eða verulega hefur dregið úr þeim með notkun bithlífar og annarri bitmeðferð þarf að skoða hvort og hvaða breytingar þarf að gera á samanbiti viðkomandi til þess að bati verði varanlegur og til þess að hann eða hún geti hætt eða dregið úr notkun bithlífar.

Ef þú hefur grun um að eiga við bitvandamál að stríða, dragðu þá ekki að fara til tannlæknis!

Sjá einnig Ráð og leiðbeiningar um heilsu og vellíðan á Doktor.is


Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «Febrúar 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar