Gat í tungu
Á síðustu árum hefur færst mjög í vöxt að láta gata tungu sína og setja í það skartgrip. Mikilvægt er að hafa í huga að gati í tungu fylgir meiri áhætta en gati í eyra þar sem sýkingarhætta er mikil í munnholi. Þess eru dæmi að sökum sýkingar af völdum gats í tungu hafi öndunarvegir þrengst og valdið öndunarerfiðleikum. Af þeim sökum vara bresk heilbrigðisyfirvöld nú fólk við að gata tungur. Önnur hugsanleg afleiðing af völdum gats í tungu er hætta á ofnæmisviðbrögðum af völdum skartgrips.
Varðandi tennurnar sem slíkar getur skartgripurinn rispað þær og skemmt glerung þeirra. Einnig getur hann stuðlað að sprungum í tönnum. Hætta fer þó talsvert eftir því hvar gatið er staðsett á tungunni. Glerungur tanna er þeim mjög mikilvægur og er óafturkræfur. Það er, eyðileggist hann er um varanlegt tjón að ræða.
Sjá nánar >>> hér
Mynd












