Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Hvernig tannbursti hentar best?

Hvað þarf ég að gera til að halda tönnum mínum hreinum?
Eiga tannbursta, tannkrem og tannþráð og nota kvölds og morgna. Hafðu í huga að tannþráður er mjög mikilvægt hjálpartæki við tannhirðu og án hans myndast tannsteinn sem síðar getur valdið tannholdsbólgum. Rannsóknir sýna að með tannbursta hreinsir þú um 60% tanna, með tannþræði getur þú hreinsað 40% yfirborðs tanna.

Hann kemst að matarleifum sem kunna að liggja rétt undir tannholdi. Séu þær ekki hreinsaðar úldna þær undir tannholdinu og valda andfýlu og eins og áður segir tannholdsbólgum síðar meir. Þú skalt venja þig á að nota tannþráð á hverju kvöldi og ekki sjaldanr en þrisvar í viku. Næst þegar þú ferð til tannlæknis skaltu spyrjast frekar um þetta atriði.

Hvernig á ég að velja tannbursta?
Í fæstum tilfellum, ef nokkrum, henta tannburstar með hörðum haus (Merktir: Hard). Þeir geta þvert á móti farið illa með tannhold og valdið skaða á tönnum (glerungi, sem er óafturkræfur skaði) ef þeir eru notaðir af krafti. Veldu bursta sem þú telur að henti þér best, hvort sem hann er með bognu skafti eða ekki. Ennfremur eru hausar burstanna misjafnlega hærðir. Hvað það varðar skaltu ráðfæra þig við tannlækninn þinn.

Hvað er fleirhliða tannbursti - er hann betri?
Það er ekki nauðsynlegt að kaupa slíkan bursta ef þér gengur vel að bursta með venjulegum bursta. En fyrir börn og þá sem hafa minni styrk í höndum, gæti þessi bursti verið heppilegur.

Hvað með rafmagnstannbursta?
Hugsanlegt er að rafmagnstannbursti gagnist liðagigtarsjúklingum og þeim sem hafa lamast vegna heilablæðingar. En almennt má segja að mörgum finnist spennandi að bursta tennurnar með rafmagnstannbursta, eingöngu vegna að hann er rafknúinn. Það skilar sér oft í betri burstun, en rafmagnstannbursti er ekki ávísun á fullkomna tannhirðu. Hann getur verið gagnlegur, en hann er ekki auðveldari í notkun en venjulegur tannbursti. Það gildir sama og um fleirhliða burstann; rafmagnstannbursti getur hugsanlega hentað börnum og þeim sem hafa minni styrk í höndum.

Hvernig á ég að bursta tennurnar?
Í fyrsta lagi skaltu varast að nota of harðan tannbursta, hann getur eyðilagt glerung tannanna. Við sjálfa burstunina er mikilvægt að þú leggir burstann að tannholdinu og burstir frá því, það er að segja, varastu að bursta upp að tannholdinu því ef þú gerir það er hætta á að þú ýtir óhreinindunum undir tannholdið. Þegar þú burstar tennur efri góms skaltu bursta niður, en þegar þú burstar tennur neðri góms skaltu bursta upp. Þannig kemur þú best í veg fyrir að þú ,,sópir undir teppið''.

Burstaðu tennur þínar að jafnaði tvisvar á dag - kvölds og morgna. Vandaðu þig við verkið, taktu þér tíma. Viljir þú bursta oftar á dag, skaltu gæta þess að gera það varlega því hætta er á að skemmdir verði á glerungi tannanna. Einkum er óráðlegt að bursta strax að lokinni drykkju ávaxtasafa því rannsóklnir sýna að þá sé glerungurinn viðkvæmastur og hætta á skemmdum mikil.


Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «September 2010» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar