Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Íþróttaskinnur

Allir sem stunda íþróttir þar sem hætta er á áverkum ættu að nota íþróttaskinnur til að vernda tennurnar frá skaða. Hægt er að fá tilbúnar skinnur í íþróttaverslunum. Þær eru hitaðar í vatni og mótaðar á tennurnar. Þær eru ódýrar en hafa talsverðan ókost. Þær geta verið það fyrirferðamiklar að þær hindri eðlilega öndun og trufli tal. Þar sem þær passa yfirleitt illa geta þær valdið óþægindum sem aftur leiðir til lítillar notkunar.

Besta ráðið er að láta sérsmíða skinnu sem passar nákvæmlega yfir tennur viðkomandi notanda. Slík skinna truflar lítið tal og öndun og er nægjanlega sterk til að veita tönnunum vörn frá áverkum. Tannlæknar sérsmíða slíkar skinnur með því að taka mót af tönnunum. Sérsmíðaðar skinnur eru dýrari en staðlaðar en þær geta komið að umtalsvert meiri notkun og borgað sig margfalt með því að koma í veg fyrir tannskaða.

Sjá einnig Ráð og leiðbeiningar um heilsu og vellíðan á Doktor.is 


Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «Febrúar 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar