Láttu ekki góma þig með ónýtar tennur
Hefur þú hugleitt að
- það er hægt að komast nær algerlega í veg fyrir tannskemmdir og tannholdssjúkdóma?
- sífellt nart skemmir tennurnar?
- með góðri munnhirðu verður andardrátturinn ferskur?
- rannsóknir sýna að flúor varnar tannskemmdum?- flúor gagnast fólki á öllum aldri?
- með tannburstanum hreinsar þú 60% af yfirborði tanna, tannþræði 40%?
- kalk styrkir tennur og bein?
- vatn er besti svaladrykkurinn sem völ er á?
- vatn og mjólk valda ekki sýruskaða á tönnum?
- það er vel þess virði að halda tönnunum heilum alla ævi?
Vendu þig á að borða fjölbreytta og holla fæðu, burstaðu tennurnar með
flúortannkremi og notaðu tannþráð og flúorskol. Nauðsynlegt er að fara
reglulega í eftirlit til tannlæknis svo hægt sé að greina og helst koma í
veg fyrir tannsjúkdóma áður en þeir verða að vandamáli.
Hefur þú hugleitt að
- nú er besti tíminn til að leggja grunn að góðri tannheilsu?
- á unglingsárunum er mikil hætta á að tennurnar skemmist?
- 18 ára og eldri bera allan kostnað vegna tannviðgerða?
- tennur þínar ættu að endast þar til yfir lýkur?
Við glerungsyfirborð tanna á sér stað stöðugt úrkölkunar- og endurkölkunarferli. Sýrustig í munni ræður miklu um hvort hefur yfirhöndina. Þegar sýrustigið fellur, leita steinefnin út úr tönnunum (úrkölkun) og þegar sýrustigið hækkar á ný fara steinefnin að hlaðast inn í tennurnar á nýjan leik (endurkölkun).
Sýrueyðing
Flest af því sem við borðum og drekkum sýrir munnvatnið; sykrað og súrt fæði þó langmest. Samspil sýkla, sykurs, sýru og tíma getur leitt til tannskemmda. Sýklar breyta sykri fæðunnar í sýrur og í u.þ.b. hálftíma eftir að sykurs hefur verið neytt, ríkja kjöraðstæður úrkölkunar. Annars konar vandamál, sýrueyðing tanna, fer vaxandi og má í því sambandi nefna að neysla gosdrykkja og ávaxta-drykkja, í tíma og ótíma, veldur því að glerungurinn á yfirborði tannanna eyðist. Hugleiddu því bæði hvað þú borðar og drekkur, og ekki síður hversu oft á dag.
Munnvatnið
Eitt meginhlutverk munnvatns er að gera sýrurnar hlutlausar. Þegar við tyggjum sykurlaust tyggjó stóreykst munnvatnsflæði og verkunartími sýrunnar styttist. Hafðu samt í huga að það að tyggja sykurlaust tyggjó kemur ekki í stað tannburstunar og notkunar á tannþræði! Flúor er vítamín tannanna. Það tekur m.a. þátt í endurkölkun og myndar
sterkara glerungsyfirborð. Notaðu því ávallt flúortannkrem við tannburstun, auk þess sem flúorskol og flúortyggjó er gott ef þú vilt styrkja tennur þínar enn frekar. Flúor gagnast fólki á öllum aldri!
Þegar blæðir úr tannholdi við burstun er líklegt að tannholdsbólga sé að minna á sig! Ef munnhirða er ekki bætt á þessu stigi getur bólgan færst niður í bein og stoðvefi tannanna. Í framhaldi af því getur beinið eyðst og tönnin losnað.
Fyrstu afleiðingar reykinga og tóbaksnotkunar koma fram í munnholi. Andremma, gular tennur og tannholdsbólgur eru algengar afleiðingar og hættan á myndun krabbameins í munnholi margfaldast.
Sjá einnig Ráð og leiðbeiningar um heilsu og vellíðan á Doktor.is
Mynd












