Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Lystarstol og lotugræðgi

Lystarstol og lotugræðgi, einkum hið síðarnefnda, hafa áhrif á tannheilsu. Þegar kastað er upp oft á dag, kemur súrt magainnihaldið í munnholið og getur valdið miklum sýrskaða á tönnum. Það sést helst á bakhlið framtanna í efri góm. Þetta er ekki eins algengt í neðri góm, því þar eru tennur betur varðar af kinn og tungu. Þegar þessir sýruskaðar eru verulegir, geta tennur jafnvel brotnað niður.Skemmast tennur hjá lotugræðgisjúklingum meira en hjá öðrum?
Ekki endilega, en ef fæðan inniheldur mikinn sykur, þá geta tannskemmdir orðið verulegar.

Hver er meðferð þegar tennur skaðast á þennan hátt?
Besta meðhöndlunin eru forvarnir; því er mikilvægt að greina vandann í upphafi. Til að minnka sýruskaðann er nauðsynlegt að skola vel með vatni eða flúor, sem er betra, eftir uppköst. Það má alls ekki bursta tennur strax eftir uppköst. Ef kul er í tönnum, má minnka það með sérstökum efnum sem minnka viðkvæmni tanna. Athugið að tannkrem sem innihalda efnið pyrofosfat (minnkar tannsteinsmyndun) geta valdið aukinni viðkvæmni.


Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «Febrúar 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar