Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Tannkrem og munnskol

Hvernig á ég að velja tannkrem sem hentar mér?
Síðustu ár hafa margar tegundir tannkrema með mismunandi efnasamsetningu litið dagsins ljós. Flúortannkrem er það sem hvað lengst hefur verið á markði, en þau vinna vel gegn tannskemmdum. Nýrri tannkrem innihalda einnig efni sem vinna gegn bakteríum í munnholi auk tannsteins og tannholdsbólgum. Það fer því eftir þörfum hvers og eins hvaða tannkrem velja skal. Best er að ráðfæra sig við tannlækninn sinn.

Get ég keypt tannkrem sem nýtist öllum í fjölskyldunni?
Já, og þannig er því langoftast farið. Mikilvægast er að tannkremið innihaldi flúor og það gera langflest tannkrem. Þó er ekki ráðlegt að bursta tennur ungra barna með venjulegu flúortannkremi, og alls ekki þeirra yngstu sem enn eru að taka tennur og hafa ríka tilhneigingu til að kyngja því sem kemur í munninn. Slík tannkrem eru of sterk og geta valdið magakveisu. Þess vegna er ráðlegast að kaupa tannkrem sem sérstaklega eru ætluð börnum.

Þá má einnig nefna að flest tannkrem innihalda hreinsiefni sem nefnist natrium lauryl sulfat. Örfáir einstaklingar eru viðkvæmir fyrir þessu efni og verða fyrir ertingu í slímhúð munnsinns vegna þess. Til eru tannkrem sem ekki innihalda þetta efni og gæti því hentað betur. Fáir þú oft kul í tennur skaltu kaupa tannkrem sem sérstaklega eru ætluð viðkvæmum tönnum. Enn önnur tannkrem henta þeim sem hafa bólgur í tannholdi. Sum þessara tannkrema þarf að nota í ákveðinn tíma, allt að nokkra mánuði í einu, áður en árangur næst.

Tannkrem sem innihalda ensím; hvað er það?
Ennsímtannkremum er ætlað að vinna á bakteríum í munnholi þannig að þær framleiði ekki sýru sem valdið getur vanheilsu. Rannsóknir sýna að þeir sem eiga það til að fá munnangur fá oft lækningu með notkun ensímtannkrema. Þessi tannkrem innihalda ekki natrium lauryl sulfat, en það gæti einnig haft þessi jákvæðu áhrif.
Sjá nánar
Meira um tannkrem

Er mikilvægt að nota munnskol?
Mikilvægast er að bursta tennur og hreinsa með tannþræði eða vönduðum tannstöngli milli tanna. Notkun munnskola í stuttan tíma í einu getur verið nauðsynleg, til dæmis eftir skurðaðgerð, tannplantaísetningu og í fleiri tilfellum. Langtímanotkun munnskols er aðeins ráðleg meðal langlegusjúklinga eða fatlaðra.

Hvaða munnskol eru í boði hér á landi?
Við höfum þrenns konar munnskol:
- Flúorskol sem vinnur gegn tannskemmdum.
- Munnskol sem vinnur gegn bakteríum. Munnskol sem innihalda virka efnið klórhexidín eru langvirkustu munnskolin gegn sýklum. Slík munnskol geta valdið litun á tönnum, fyllingum, tungu og víðar í munnholi. Bragðskyn getur einnig breyst og sár myndast á slímhúð. Þetta gengur yfirleitt til baka þegar notkun er hætt. Þú skalt ráðfæra þig við tannlækninn þinn áður en þú notar þannig skol.
- Munnskol sem gefur frískt og gott bragð í munn.


Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «Maí 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar