Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Tannlækningar barna innan tryggingakerfisins

Besta hugsanlega munnheilsa barna og ungmanna næst með því að veita óheftan aðgang að
tannlækningum sem veittar eru af vel þjálfuðum tannlæknum og sérfræðingum í barnatannlækningum. Hér á eftir fer listi yfir það sem Félag íslenskra barnatannlækna telur vera lágmarksþátttaka tryggingafélags í tannlækningum barna. Einu gildir hvort um er að ræða einkatryggingafélag eða almannatryggingafélag á borð við Tryggingastofnun ríkisins. Þjónustan skyldi í öllum tilfellum vera veitt af tannlæknum sem eru vel þjálfaðir í þjónustu við börn eða sérfræðingar í barnatannlækningum.

Skoðun, greining og forvarnir 0 til eins árs
Mikilvægt er að barnið fái munnskoðun á fyrsta ári: Við það tækifæri skal fræða foreldra barnsins um munnheilsu og forvarnir gegn tannskemmdum. Á fyrsta ári barnsins skal fara fram munnskoðun, fræðsla, forvarnir og mat á tannskemmdaáhættu í samræmi við leiðbeinandi álit Félags íslenskra barnatannlækna um endurkomutíðni, forvarnir og meðferð fyrir börn (FÍB febrúar 1999).

1 til 18 ára
- Eftir fyrsta afmælisdag barnsins skal hefjast reglulegt eftirlit tannlæknis með tönnum og símat á tannskemmdaáhættu í samræmi við leiðbeinandi álit Félags íslenskra barnatannlækna um Endurkomutíðni, forvarnir og meðferð fyrir börn (FÍB febrúar 1999).
- Tannröntgenmyndir skal taka eftir þörfum að mati tannlæknis barnsins.
- Tannhreinsun á að veita í það minnsta tvisvar á ári, en oftar ef ástæða er til að mati tannlæknis barnsins.
- Flúormeðferð á að veita í það minnsta tvisvar á ári, en oftar ef ástæða er til að mati tannlæknis barnsins.
- Fræðslu til barnanna, fjölskyldu eða umannenda þeirra um tannheilsu og varnir gegn tannskemmdum á að veita í hvert sinn sem barnið heimsækir tannlækninn. Fræðsla þessi á eingöngu að vera veitt af tannlæknum eða tannfræðingum.
- Skorufyllur skal veita börnum sem eru í áhættu hvað varðar tannátu í bitflötum tanna.
- Skarðvörslu skal veita börnum sem orðið hafa fyrir ótímabærum tannmissi.
- Að auki á hvert tryggingafélag að endurgreiða fyrir þá skoðun, greiningu eða forvarnarmeðferð sem tannlæknir barnsins telur nauðsynlega, þó svo að hún sé ekki tíunduð hér að ofan.

Meðferðarþjónusta
Sérhvert barn skal hafa aðgang að þjónustu til þess að lina þjáningar, lækna sýkingar, fá tannviðgerðir og viðhalda tann- og munnheilbrigði.
- Tannfylling og krónugerð fyrir barnatennur og fullorðinstennur.
- Rótaraðgerðir og rótfyllingar eftir þörfum.
- Tannholdsmeðferðir eftir þörfum.
- Tanngervasmíði eftir þörfum.
- Munn og kjálkaskurðlækningar eftir þörfum.
- Tannréttingar fyrir börn sem greinst hafa með alvarlegar tannskekkjur og misræmi í vexti kjálka.
- Lyfjagjöf til að meðhöndla sársauka, sýkingu, munnsjúkdóma, eða afleiðingar af slysum.


Sjá einnig Ráð og leiðbeiningar um heilsu og vellíðan á Doktor.is 

[Til baka]

Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «September 2010» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar