Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Tannplantar

Fólk getur misst tennur af margvíslegum ástæðum. Dæmi eru afleiðingar sjúkdóma, svo tannátu og tannholdssjúkdóma, óhagstætt meðfætt sýrustig í munni, slys og slæm umhirða. Lengst af voru ekki önnur ráð fyrir hendi en úrdráttur tanna og ísetning "heilgómasetts" í staðinn.
Síðar komu "brýr" til sögunnar, ýmist fastar eða lausar til að brúa tannlaus bil. Í slíkum tilvikum þarf oft að slípa burt hluta af tönnum báðum megin við bilið til að koma fyrir brúnni eða krónunni. Þær tannrætur sem fyrir eru, og brúin er fest á, þurfa þá að bera aukið álag. Þoli þær ekki þetta aukna álag getur það leitt til þess að þær og þar með brúin sem þær bera, losni.

Á síðustu árum hefur komið fram nýjung, sem felst í niðursetningu skrúfu í rótarstæði og ásetningu tannar á skrúfuhausinn. Þetta eru svokallaðir tannplantar. Skrúfan gegnir þá hlutverki tannrótar og er traust undirstaða fyrir nýja tönn. Auk þess sem festing hennar byggist á skrúfun niður í tannstæðið, þar sem rótin sat áður, myndar líkaminn smám saman tannvef sem festir hina nýju rót enn betur á tveimur til þremur mánuðum. Við ísetningu tannplanta þarf ekki að slípa til aðlægar tennur eins og raunin er þegar um smíði brúar er að ræða.

Þegar hin nýja undirstaða hefur fest sig í sessi er óhætt að festa tannkrónu eða brú. Núorðið er algengast að láta tannplantann (skrúfuna) standa upp úr tannholdinu til að ekki þurfi að beita annarri skurðaðgerð að græðslutíma loknum.

Önnur aðferð við endurgerð tanna eru svokallaðar ,,skelkrónur "

Leitaðu frekari upplýsinga og ráða hjá  tannlækninum þínum.


Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «Júlí 2010» 
sunmánþrimiðfimföslau
    123
45678910
11121314151617
18192021222324
25262728293031

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar