Tannréttingar
Á þriðja aldursári eru allar barnatennur yfirleitt komnar fram og þá ætti barnið að vera farið að kynnast tannlækninum sínum. Tannlæknirinn lítur eftir öllu viðkomandi tönnum, þar á meðal tann- og bitskekkju, og vísbendingum um þörf fyrir tannréttingu. Tannréttingasérfræðingar hafa lokið þriggja ára framhaldsnámi í sinni grein og því leita aðrir tannlæknar oftast til þeirra þegar tannskekkja uppgötvast. Tilvísun er þó ekki nauðsynleg og geta foreldrar leitað beint til tannréttingasérfræðinga hvenær sem er.
Í hugum flestra eru unglingsárin sá tími sem tengist tannréttingu með spöngum eða svokölluðum föstum tækjum. Mörg vandamál er þó auðvelt að leysa fyrr, sérstaklega getur verið áhrifaríkt að grípa inn í þegar fyrstu fullorðinstennurnar eru að koma fram við 6 til 8 ára aldur.
Hver er tilgangur meðferðar á tannskiptaaldri?
- Að skapa skilyrði fyrir eðlileg tannskipti og kjálkavöxt.
- Að koma í veg fyrir grófar tann- og bitskekkjur, þvingunarbit og andlitsskekkjur.
- Að draga úr framstæði framtanna til að minnka hættu á áverkum, t.d. brotnum framtönnum.
- Að stöðva óæskilega ávana, s.s. fingursog og tunguþrýsting.
- Að draga úr vandamálum við tal og öndun.
- Að minnka líkur á tannskemmdum með því að gera tannhreinsun auðveldari.
- Að viðhalda tannbilum fyrir undirliggjandi fullorðinstennur ef barnatennur hafa tapast ótímabært.
- Að koma í veg fyrir stríðni vegna tannskekkju.Í mörgum tilfellum getur besta meðferðin falist í bið með tannréttingar þar til tannskiptum lýkur við 10 til 15 ára aldur, eða jafnvel í sumum tilvikum þar til vexti er að mestu lokið.
Mikilvægt er að tannréttingasérfræðingurinn sé hafður tímanlega með í ráðum til að hægt sé að tímasetja aðgerðir þannig að þær verði eins markvissar og einfaldar og mögulegt er.
- Miklu yfirbiti og framstæðum tönnum.
- Opnu biti á framtannasvæði.
- Meðfæddri tannvöntun; fullorðinstönnum sem myndast ekki.
- Krossbiti og saxbiti.
- Miklum þrengslum á framtannasvæði.
- Óeðlilegri stöðu fullorðinstanna sem hindrar að þær komi fram.
Að auki eru mörg önnur atriði sem of langt mál yrði að telja upp hér.
Sjá einnig Ráð og leiðbeiningar um heilsu og vellíðan á Doktor.is
Mynd












