Fréttir
2.4.2009
Hjálparvakt tannlækna, fréttatilkynning
Formaður Tannlæknafélags Íslands þakkar tannlæknum frábærar viðtökur.
2.4.2009
Hjálparvakt tannlækna fyrir börn og unglinga
Hjálparvakt Tannlæknafélags Íslands og Tannlæknadeildar Háskóla Íslands tekur til starfa n.k. laugardag. Nánari upplýsingar með því að smella á krækjuna.
30.3.2009
Kennslumyndband i notkun tannþráðs
26.3.2009
Hafa kosningaloforðin frá 2007 staðist tímans tönn?
26.3.2009
Facebook síða Þórhalls Heimissonar varðandi tannvernd barna
23.3.2009
Að gefnu tilefni
Tannlæknafélagi Íslands hefur borist fyrirspurn frá félaga þar sem spurst er fyrir um það hvort félagið hafi styrkt stjórnmálaflokka í gegnum tíðinna.
Samkvæmt okkar upplýsingum þ.e.a.s. frá því að Anný hóf hér störf fyrir rúmum 15 árum þá hefur TFÍ aldrei styrkt stjórnmálaflokka.
Styrkir TFÍ hafa farið til góðgerðamála, s.s. Rauða krossins og Geðhjálpar.
17.3.2009
Fjármálaráðuneytið hefur að tillögu Fjármálaeftirlitsins skipað Lífeyrissjóði Tannlæknafélags Íslands umsjónaraðila. Nánari fréttir til félagsmanna um leið og þær berast TFÍ.
Umsjónarmenn skipaðir
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins leikur grunur á því að sjóðirnir hafi fjárfest of mikið í skuldabréfum ákveðinna félaga, þar á meðal í Landsbankanum. Þá herma heimildir Morgunblaðsins að mörg þeirra félaga sem fjárfest hafi verið í séu nú í greiðslustöðvun eða komin í þrot.
Forsvarsmenn sjóðanna eru einnig grunaðir um að gefa rangar skýrslur yfir fjárfestingar sínar.
23.2.2009
Nýr formaður hjá FTAT
Félag tanntækna og aðstoðarfólks tannlækna hefur opnað skrifstofu að Háaleitisbraut 58, 108 Reykjavík.
Skrifstofan er opinn alla virka daga frá 10:00 – 14.00 sími á skrifstofu er 571-0585. Starfsmaður á skrifstofu er Kristín Hraundal.
Nýr formaður og stjórn er í félaginu.
Formaður: Inger Steinsson
Varaformaður Erla Guðjónsdóttir
Ritari Guðrún Karlsdóttir
Meðstjórnendur Hildur Backmann og Kristín Ragnarsdóttir.
Markmið nýrrar stjórnar er að gera félagið sýnilegra og opnara bæði fyrir hinn almenna félagsmann og þá sem eru utan þess.
Að hafa metnaðarfulla fæðslu á ári hverju. Að virkja meira félagskonur til starfa.
12.2.2009
Uppörvunarbréf frá Council of European Dentists
Skrifstofunni hefur borist bréf frá CED. Þetta er holl og góð lesning fyrir alla tannlækna enda kemur þar fram að við erum í alheimskreppu og ástandið hér á landi er ekki ólíkt því og er í öðrum Evrópulöndum.
Ingibjörg
Mynd













