Fréttir
29.3.2007
Þróun tannlæknakostnaðar
Hinn 15. apríl 1992 var samningur TFÍ og TR undirritaður. Samið var um fasta gjaldskrá sem átti að fylgja verðlagi. TR neitaði þó á samningstímanum að taka inn 4.16% hækkun sem TFÍ samþykkti að fresta tímabundið í nafni ,,þjóðarsáttar”. TR neitaði einnig að taka inn í grunninn ýmsa rekstrarliði: svo sem aukin kostnað vegna sóttvarna, tryggingar og fjármagnskostnað.
28.3.2007
Vegna fréttar Tr um verðlagningu tannlæknaþjónustu
Það er ekkert við það að athuga að gjaldskrá tannlækna sé skoðuð og metin. Það sem er sérkennilegt er, að greiðslustofnun tannlæknastyrkja, Tryggingastofnun ríkisins, sé að gera verðlagskannarnir á stétt sem er ekki með neinn samning við stofnunina og hefur ekkert um styrkveitingu stofnunarinnar að segja, ekki frekar en að stofnunin hafi nokkuð um verðlagningu tannlæknaþjónustu að segja og þessi stofnun birti svo einhverjar niðurstöður um verðlagningu sem engar forsendur eru gefnar fyrir.
19.3.2007
Milljarð vantar í barnatennur- Kvöldfréttir á Stöð 2
19.3.2007
Tannheilsu barna hefur hrakað s.l. 10 ár
16.3.2007
Rás 1 - Morgunvaktin - TANNHEILSA BARNA
Hrun blasir við í tannheilsu íslenskra barna, segir Sigurjón Benediktsson, formaður Tannlæknafélagsins. Hvers vegna? Talað við Ingu B. Árnadóttur, tannlækni og forseta tannlæknadeildar Háskóla Íslands.
Viðtalið
12.3.2007
Á rangri leið í tannheilbrigðismálum
Hvernig skyldi standa á því að í velmegunarþjóðfélagi eins og á Íslandi í dag, eru íslensk börn, rétt eins og hér á öldum áður, að gráta sig í svefn vegna tannpínu? Og dæmi um að allt niður í þriggja ára börn með allt að16 tennur skemmdar og margar það ílla farnar að nauðsynlegt reynist að fjarlægja þær. Er tannheilbrigði barna og unglinga hér á landi að stefna í algert óefni og hver eru viðbrögð stjórnvalda? Skessuhorn ræddi við Jónas Geirsson, tannlækni á Akranesi og lektor við Háskóla Íslands um tannheilbrigði íslenskra barna og válegar niðurstöður MUNNÍS rannsóknar, sem Lýðheilsustofnun stóð fyrir og kynnti fyrir skömmu. Einnig um árangurslitla baráttu Tannlæknafélagsins við heilbrigðisyfirvöld og hvernig endurgreiðslur vegna tannviðgerða barna og unglinga hafa snarlækkað úr 100% niður í 50-40% á undanförnum árum.
28.2.2007
Um skólatannlækningar.
Að tannskemmdir fara vaxandi hefir mátt lesa um í blöðum nýlega. Ýmsar ástæður eru nefndar og tillögur gerðar um hvernig megi ráða bót á. Í frétt, sem birtist í Morgunblaðinu.
27.2.2007
Listahátíð tannlækna í tilefni af 80 ára afmæli félagsins.
Í ár eru liðin 80 ár frá stofnun TFÍ. Í tilefni af því stendur til að hafa hátíðahöld í tengslum við ársþing í nóvember n.k. óvenju viðamikil. Ársþingið verður haldið í nýju Laugardalshöllinni þar sem allar aðstæður eru ákjósanlegar til sýningahalds og annarra viðburða sem gætu komið uppá.
Mynd












