Fréttir
20.10.2008
Kona í fyrsta skipti formaður Tannlæknafélags Íslands.
Ný stjórn Tannlæknafélags Íslands var kosin á aðlfundi félagsins sem haldinn var 16. október sl.
Stjórnina skipa, Ingibjörg S. Benediktsdóttir formaður, Sigurður Benediktsson varaformaður, Stefán Hallur Jónsson gjaldkeri, Petra Vilhjálmsdóttir ritari og Kristín Gígja Einarsdóttir meðstjórnandi. Í varastjórn voru kosin þau Börkur Thoroddsen og Sonja Rut Jónsdóttir. Er þetta í fyrsta skipti í 81 árs sögu félagsins sem kona er kosin formaður.
11.10.2008
Tilkynning frá stjórn Lífeyrissjóði TFÍ
Í því efnahagslega umróti sem gengið hefur yfir Ísland er ljóst að verulegir fjármunir hafa tapast vegna verðfalls verðbréfa fjármálastofnana og annarra fyrirtækja. Mun það leiða til töluverðra áhrifa á Lífeyrissjóð Tannlæknafélags Íslands sem og aðra lífeyrissjóði landsins. Unnið er að því að fá rétta mynd af verðmæti eigna Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands og grípa til þeirra ráðstafana sem tækar eru til að hámarka verðmæti þeirra. Meðan þetta ástand varir verður sjóðurinn að takmarka greiðslur úr séreignardeild sjóðsins vegna óvissu um markaðsverð eigna sjóðsins. Um leið og aðstæður leyfa mun rekstur sjóðsins færast aftur í eðlilegt horf.
15.9.2008
Tannlæknafélag Íslands óskar tannlækninum knáa og eyjapeyjanum
Heimi Hallgrímssyni, þjálfara meistaraflokks karla hjá ÍBV til hamingju með þann frábæra árangur sem hann hefur náð með lið sitt nú í sumar. Heimir og félagar til hamingju með að vera komnir upp í úrvalsdeild.
Stjórnin
sjá nánar linkinn hér að neðan
http://www.sudurlandid.is/Eyjafrettir/?p=101&id=23580&PHPSESSID=82efc12dbdc288234b554def26a7783a
30.6.2008
Umsögn um frumvarp til laga um sjúkratryggingar.
Almennt má segja um frumvarpið að það er þungt og flókið eins og raunar allir lagabálkar er snerta heilbrigðismál. Slíkt kallar á endurbætur á endurbætur ofan eins og raunin er með lög um almannatryggingar og væri óskandi að lögin yrðu einföld og skiljanleg og laus við óhóflegar reglugerðarheimildir.
Tannlæknafélagið fagnar þeim markmiðum frumvarpsins að tryggja sjúkratryggðum jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag. Að mati Tannlæknafélags Íslands er svo ekki í dag eins og kemur skýrt fram í MUNNÍS rannsókninni sem var framkvæmd að beiðni heilbrigðis- og tryggingaráðuneytisins.
6.5.2008
Ábyrgð hins opinbera:
Hrikaleg og hrakandi tannheilsa.
Nú er ljóst að hið opinbera hefur engan áhuga á tannheilsu tryggingaþega. Áhuginn er enn minni á almennri tannheilsu þjóðarinnar. Tannheilsu fer hratt hrakandi. Þegar svo er komið ber fagstéttum að grípa til sinna ráða.
Tannlæknar hafa rétt fram hönd sátta og samninga til þess eins að vera hunsaðir. Félagið ritaði ráðherra og samninganefnd HR bréf þar sem bent var á færar leiðir til að koma tannheilsu aftur í lag á einhverjum árum. Boðið upp á viðræður og samráð.
22.4.2008
Rekstur heilbrigðisþjónustu, tilkynningaskylda og staðfesting landlæknis
Með vísan í lög um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007 og lög um landlæknir nr. 41/2007 will landlæknir vekja athygli á því að nú er óheimilt að hefja starfsemi á sviði heilbrigðisþjónustu áður en fyrir liggur staðfesting landlæknis um að ákveðnar faglegar lágmarkskröfur séu uppfylltar. Fyrirhugaðan rekstur heilbrigðisþjónustu ber að tilkynna til landlæknis. Landlæknir skal halda skrá yfir rekstraraðila og verði breytingar á þjónustu rekstraraðila eða rekstri heilbrigðisþjónustu hætt skal það tilkynnt til landlæknis.
Fjallað er um faglegar lágmarkskröfur til reksturs heilbrigðisþjónustu í IV. kafla reglugerðar nr. 786/2007 um eftirlit landlæknis með rekstri heilbrigðisþjónustu og faglegar lágmarkskröfur. Landlæknir skal setja fram faglegar lágmarksköfur varðandi húsnæði, aðstöðu, tæki, búnað og mönnun. Einnig ber að fylgja fyrirmælum sem landlækni er heimilt að gefa út sbr. 12.gr. IV. kafla í fyrrgreindri reglugerð.
Hafi heilrigðisstarfsmaður eða annar þar til bær aðili áform um að hefja rekstur heilbrigðisþjónustu er honum bent á að tilkynna það til landlæknis. Í tilkynningunni skulu koma fram almennar upplýsingar um heilbrigðisstarfsmann auk ákveðinnar lýsingar á fyrirkomulagi varðandi aðstöðu, tækjakost, búnað og mönnun. Skylt er að starfsleyfi í húsnæði hafi verið gefið út af heilbrigðiseftirliti viðkomandi sveitarfélags og skal afrit af leyfinu fylgja tilkynningunni til landlæknis. Bent er á að upplýsingar um tilkynninguna og eyðublöð má nálgast á vefsíðu Landlæknisembættisins http://www.landlaeknir.is/Pages/1330
Upplýsingar í tilkynningu um fyrirhugaðan rekstur eru forsendur þess að landlæknir geti með hvort hægt verði að staðfesta að fyrirhugaður rekstur heilbrigðisþjónustu sé talinn uppfylla faglegar lágmarkskröfur.
Landlæknir.
5.3.2008
Ný lög um landlækni, atvikaskráningu og tilkynningaskyldu
Tannlæknafélaginu barst dreifibréf frá Landlæknisembættisins, nr. 2/2008 um atvikaskráningu og tilkynningaskyldu og dreifibréf nr. 3/2008 um Lög um landlæknir nr. 41/2007. Í ýmsum greinum laganna er kveðið á um upplýsingaskyldu eða tilkynningaskyldu til landlæknisembættisins.
Samkvæmt lögunum skulu heilbrigðisstofnanir, sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmenn og aðrir sem veita heilbrigðisþjónustu halda skrá yfir óvænt atvik og skulu senda landlækni yfirlit yfir öll óvænt atvik tvisvar á ári.
29.1.2008
Reikningsskil til TR
Það er ljóst að tryggingaþegar geta greitt sínum tannlækni fyrir læknisþjónustu og síðan fengið styrk sinn greiddan frá Tr með beinni innlögn á bankareikning sinn. Reikningur er þá sendur Tr. Einnig getur tannlæknir sent reikning beint til Tr þannig að styrkur Tr er þá lagður inn á reikning tannlæknis. Á fundum TFÍ og Tr hefur komið fram að mikill misbrestur er á því að hægt sé að sjá á reikningum hvort um er að ræða að greiða eigi styrk Tr inn á reikning tannlæknis eða sjúklings.
Til að koma í veg fyrir þennan hvimleiða misskilning er rétt að merkja á senda reikninga hvort um er að ræða greiðslu til tannlæknis eða sjúklings. Það er hægt að gera með forritun í þeim forritum sem notuð eru eða handvirkt á reikningana. Sérstök umslög fást hjá Tr til að senda reikninga en þá verður að gæta þess að rétt meðferð sé tryggð.
29.1.2008
Benedikt verður stjórnarformaður sjúkratrygginga
Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, hefur skipað fyrstu stjórn nýrrar sjúkratryggingastofnunar sem tekur að fullu til starfa í haust. Benedikt Jóhannesson, framkvæmdastjóri, verður formaður stjórnar sjúkratryggingastofnunar, sem ætlað er að semja um og kaupa heilbrigðisþjónustu fyrir hönd heilbrigðisráðuneytisins.
Mynd












