Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

23.4.2007

Hjálparstarf í Kenýa.

Tannlæknanemarnir Erna Rún Einarsdóttir, Hallfríður Gunnsteinsdóttir og
Sonja Rut Jónsdóttir, sögðu frá ferð sinni til Kenýa á félagsfundi 29. mars s.l.
Sjá nánar

18.4.2007

Á Morgunvaktinni nú í morgun á Rúv var rætt við Jón Sigurðsson formann Framsóknarflokksins.

Í viðtalinu við hann kemur fram að hann lítur svo á að slæm tannheilsa barna og unglinga nú til dags, stafi af því að "tannlæknar hefðu hækkað sínar gjaldskrár umfram verðlag"
Viðtalið

18.4.2007

Heilbrigðisráðuneytið biður um viðræður

Síðastliðinn fimmtudag óskaði formaður samninganefndar heilbrigðisráðuneytis eftir fundi með TFÍ til að kanna viðbrögð við hugmyndum um samningsgrundvöll milli TR og TFÍ

12.4.2007

Nýja heimasíðan virkar!

Heimasíða félagsins er farin að virka, heimsóknum fjölgar, heimsóknir frá öllum heimshornum! Ert þú búin/n að skoða fréttasíðuna. upplýsingar úr fjölmiðlum síðustu vikur.

3.4.2007

Frekari vísitölur og talnafræði....

  Það er margt merkilegt að finna í vísitölukörfunni......

29.3.2007

Þróun tannlæknakostnaðar

Hinn 15. apríl 1992 var samningur TFÍ og TR undirritaður. Samið var um fasta gjaldskrá sem átti að fylgja verðlagi. TR neitaði þó á samningstímanum að taka inn 4.16% hækkun sem TFÍ samþykkti að fresta tímabundið í nafni ,,þjóðarsáttar”. TR neitaði einnig að taka inn í grunninn ýmsa rekstrarliði: svo sem aukin kostnað vegna sóttvarna, tryggingar og fjármagnskostnað.

28.3.2007

Vegna fréttar Tr um verðlagningu tannlæknaþjónustu

Það er ekkert við það að athuga að gjaldskrá tannlækna sé skoðuð og metin. Það sem er sérkennilegt er,  að greiðslustofnun tannlæknastyrkja, Tryggingastofnun ríkisins, sé að gera verðlagskannarnir á stétt sem er ekki með neinn samning við stofnunina og hefur ekkert um styrkveitingu stofnunarinnar að segja, ekki frekar en að stofnunin hafi nokkuð um verðlagningu tannlæknaþjónustu að segja og þessi stofnun birti svo einhverjar niðurstöður  um verðlagningu sem engar forsendur eru gefnar fyrir.



Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «Febrúar 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar