Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

5.11.2005

Sigurjón Benediktsson nýr formaður TFÍ

Sigurjón Benediktsson, tannlæknir á Húsavík, var kjörinn formaður Tannlæknafélags Íslands á aðalfundi félagsins 3. nóvember. Einnig var kjörið í stjórn félagsins.

Nýja stjórn TFÍ skipa nú, auk Sigurjóns, þau Ingibjörg Sara Benediktsdóttir varaformaður, Kristín Gígja Einarsdóttir gjaldkeri, Magnús Jón Björnsson ritari og Stefán Hallur Jónsson meðstjórnandi. Allir stjórnarmenn eru nýir utan Stefán Hallur. Formaður er kjörinn til tveggja ára í senn.

26.10.2005

Varði doktorsritgerð við tannlæknadeild

Inga B. Árnadóttir, dósent við tannlæknadeild Háskóla Íslands, varði doktorsritgerð sína, Dental health and related lifestyle factors in Iceland teenagers, við tannlæknadeildina laugardaginn 15. október síðastliðinn.

25.10.2005

Tannlæknafélagið styður reykingabann

Á málþingi Tannlæknafélagsins fyrir skömmu var fjallað um áhrif reykinga á tannheilsuna og úrræði tannlækna. Þar kom fram að reykingar hafa skaðleg áhrif á tannheilsuna sem endurspeglast m.a. í tannholdssjúkdómum, tannlosi, slakari svörun við meðferðarúrræðum og jafnvel stórfelldum tannmissi.

20.10.2005

Varði doktorsritgerð við tannlæknadeild

Inga B. Árnadóttir, dósent við tannlæknadeild Háskóla Íslands, varði doktorsritgerð sína, Dental health and related lifestyle factors in Iceland teenagers, við tannlæknadeildina laugardaginn 15. október síðastliðinn.

31.5.2005

Varist bábiljur!

Því hefur nýlega verið haldið fram í íslenskum fjölmiðli að "munnangur tengist flúor í tannkremi". Þetta er alls ekki rétt og geta þessi skilaboð haft skaðleg áhrif þar sem forvarnargildi flúors í tannkremi er löngu sannað.

9.5.2005

Tannlæknafélagið styður reykingabann

Félagsfundur í Tannlæknafélagi Íslands 4. maí 2005 samþykkti samhljóða eftirfarandi ályktun sem stjórn félagsins bar upp á fundinum:
„Tannlæknafélag Íslands styður heilshugar fram komið lagafrumvarp á Alþingi um breytingu á 9. grein laga um tóbaksvarnir þar sem gert er ráð fyrir að reykingar verði óheimilar á veitinga- og 

9.5.2005

Framfarir í meðferð tannáverka

Alþjóðlegt þing um áverka á tennur var haldið á Nordica Hotel helgina 6.og 7. maí. Morgunblaðið birti frétt um þingið 6. maí þar sem rætt var við dr. Jens O. Andreasen frá Danmörku og Ásgeir Sigurðsson, tannlækni og sérfræðing í tannholsfræðum. Í viðtali við Jens, einn þekktasta sérfræðing í heimi á sviði tannáverka, kom fram að tönn sem dettur úr munni vegna andlitsáverka megi koma aftur fyrir þannig að hún grói eðlilega ef brugðist er við á réttan hátt. Þannig geti tannlæknir bjargað tönninni jafnvel eftir 5-6 klukkutíma sé tönnin geymd í mjólk eða í saltvatni.

25.4.2005

Óbeinar reykingar hættulegar tannheilsunni

Óbeinar reykingar eru hættulegar tannheilsunni en rannsóknir sýna að þeir sem verða fyrir óbeinum reykingum eru allt að 60% líklegri til að fá tannholdsjúkdóma en þeir sem ekki verða fyrir óbeinum reykingum. Þeir sem reykja sjálfir og verða auk þess fyrir óbeinum reykingum eru í mun verri málum hvað þetta varðar en reyklausir. Þetta kom fram í framsöguerindi Dr. Helgu Ágústsdóttur tannlækni á málþingi sem Tannlæknafélag Íslands hélt á laugardag undir yfirskriftinni „ Áhrif reykinga á tannheilsuna og úrræði tannlækna “ .

19.4.2005

11.4.2005

Áhrif reykinga á tannheilsuna og úrræði tannlækna

Tannlæknafélag Íslands efnir til málþings á Grand Hótel Reykjavík, laugardaginn 16. apríl klukkan 9.30-13.00, undir yfirskriftinni Áhrif reykinga á tannheilsuna og úrræði tannlækna” . Málþingið er öllum opið og er aðgangur ókeypis. Sætafjöldi er takmarkaður og því þarf að tilkynna þátttöku til Tannlæknafélags Íslands í síðasta lagi á hádegi föstudaginn 15. apríl í síma 575 0500 eða með því að senda tölvupóst á netfangið tannsi@tannsi.is.

Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «Febrúar 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar