Fréttir
8.4.2005
Áhrif reykinga á tannheilsuna og úrræði tannlækna
Tannlæknafélag Íslands efnir til málþings á Grand Hótel Reykjavík, laugardaginn 16. apríl klukkan 9.30-13.00, undir yfirskriftinni „ Áhrif reykinga á tannheilsuna og úrræði tannlækna” . Málþingið er öllum opið og er aðgangur ókeypis. Sætafjöldi er takmarkaður og því þarf að tilkynna þátttöku til Tannlæknafélags Íslands í síðasta lagi á hádegi föstudaginn 15. apríl í síma 575 0500 eða með því að senda tölvupóst á netfangið tannsi@tannsi.is.
6.4.2005
Doktorsvörn við tannlæknadeild Háskóla Íslands
Berglind Jóhannsdóttir tannlæknir varði doktorsritgerð sína “Prevalence of malocclusion, craniofacial morphology and heritability in Iceland” eða "Tíðni bitskekkju, form og stærðir andlitsbeina og erfðastuðull á Íslandi". Vörnin fór fram 5. mars sl. við tannlæknadeild Háskóla Íslands. Andmælendur voru dr. Peter A. Mossey, University of Dundee, og dr. Rolf Berg, professor emeritus.
4.4.2005
Tannheilsa hornreka vegna fjársveltis
Tannlæknafélag Íslands og Lýðheilsustöð stóðu saman að Tannverndarviku sem lauk 5. febrúar. Tilgangurinn var að upplýsa um varanlegan skaða í munnholi af völdum reykinga. Tannlæknar lögðu lóð sín á vogarskálarnar með því að bjóða ókeypis skoðun og ráðgjöf föstudaginn 4. febrúar. Jákvæð viðbrögð almennings og fjölmiðla gerðu að verkum að framtak tannlækna vakti verðskuldaða athygli.
Heimir Sindrason, formaður TFÍ
4.3.2005
Reykingar og tannheilsa
Reykingar og tannheilsa
Reykingar eru feigðarflan. Sennilega eru flestir farnir að
4.3.2005
Neyðarvakt tannlækna
Neyðarvakt tannlækna TFÍ á Höfuðborgarsvæðinu 19. maí
Laugardaginn 13. og sunnudaginn 14. apríl verður opið milli kl. 11 og 13 á tannlæknastofu Bjarka Ágústssonar Staðarbergi 2 – 4 Hafnarfirði. Síminn þar er 565-1600. Mánudaginn 15 til föstudagsins 19. maí verður Bjarki á bakvakt á stofutíma - eingöngu þegar um neyðartilfelli er að ræða - í sama símanúmeri.
4.2.2005
Ókeypis skoðun og ráðgjöf
Víða mikið að
{mosimage}Á mörgum tannlæknastofum var mikið að
2.2.2005
Tóbak og munnslímhúð
Tóbak og munnslímhúð
Óalgengt er að hugað sé sérstakalega að skaðlegum áhrifum tóbaks á munnholið þrátt fyrir að tóbaksnotkun hafi nánast undantekningarlaust bein skaðleg áhrif á munnslímhúðina.
En hvernig má þekkja sjúkdómseinkennin eða “fingraför” tóbaks í munnholi?
Fyrst koma oftast í ljós búnir blettir í slímhúð vegna fjölgunar á melanocytes (sortufrumur) sem eru húðfrumur er lita húðina og þessum húðfrumum fjölgar vegna áhrifa tóbaks. Þessar meinlausu breytingar eru sérstaklega augljósar á meðal Norðurlandabúa en eru skiljanlega ekki eins áberandi á meðal þeldökkra. {mospagebreak}
2.2.2005
Reykingar frábær leið til að losna við tennurnar
Ég reykti á menntaskólaárum mínum. Mér fannst reyndar vont að reykja en ég lét mig hafa það. Meirihluti bekkjarfélaga minna reykti og það var gjarnan stolist til að reykja á klósettinu uppi á háalofti í MR. Einn var á vakt og þegar kennari var sendur upp til að gá hvort við værum að stelast voru menn fljótir að kasta stubbnum út á þak, sturta honum niður eða jafnvel éta hann. Þegar kennarinn spurði hvort við hefðum verið að reykja hristu allir höfuðið. Við sluppum með skrekkinn þar sem kennarinn, sem hefði átt að finna reykingalyktina, kom úr þvílíkri stybbu af kennarastofunni að loftið hjá okkur var eins og ferskt fjallaloft í samanburði.{mospagebreak}
2.2.2005
Reykingar og tannholdsbólgur
Reykingar og tannholdsbólgur
Allt frá því um miðja síðustu öld, að ljós urðu tengsl reykinga og lungnasjúkdóma og hjarta- og æðasjúkdóma, hafa rannsóknir leitt í ljós sífellt fleiri skaðleg áhrif reykinga á almenna heilsu. Á undanförnum 20 árum hafa verið að koma æ betur í ljós tengsl reykinga og niðurbrots stoðvefja tanna. Orsök bólgu í tannholdi eru sýklar frá munnholi sem ná að festa sig á yfirborð tanna og mynda svokallaða tannsýklu sem síðan leiðir til bólgu. Ef tannholdsbólgan er ekki meðhöndluð á þessu stigi getur það leitt til þess, fyrr eða síðar, að sýklarnir beri hærri hlut, varnarkerfi líkamans verði ofboðið og bólgan dreifist um dýpri lög stoðvefjanna og stoðvefur tapist. Þetta samspil snýst alltaf um átök á milli ertivaldanna og viðnáms vefjanna{mospagebreak}
2.2.2005
Brostu FRÍTT
{mosimage}Eftir hádegi á Tannverndardaginn, föstudaginn 4. febrúar, bjóða 128 tannlæknar um allt land upp á ókeypis skoðun og ráðgjöf á tannlæknastofum sínum.
Í þessu tilboði felst stutt skoðun (sjónræn), ráðgjöf um núverandi ástand og úrræði við því. Auk þess verður fólk beðið að taka þátt í stuttri könnun á vegum Lýðheilsustöðvar. Áhugasamir eru vinsamlega beðnir að panta tíma sem fyrst en lista yfir tannlækna, sem taka þátt í þessu framtaki, má sjá hér að neðan.
Mynd












