Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

28.1.2005

Frá aðalfundi

Ýmis mál voru til umfjöllunar á aðalfundi TFÍ sem haldinn var á Nordica Hotel 3. nóvember síðastliðinn. Hér verður stiklað á stóru en fundargerðina í heild má lesa á www.tannlaeknar.is

28.1.2005

Hlaut styrk úr vísindasjóði TFÍ

Inga B. Árnadóttir hefur hlotið styrk úr vísindasjóði Tannlæknafélagsins en tilkynnt var um styrkveitinguna á aðalfundi félagsins í nóvember. Á næsta ári mun Inga verja doktorsritgerð við Háskóla Íslands um tannheilsu íslenskra unglinga og áhættuþætti þeirra og nýtist styrkurinn til útgáfu ritgerðarinnar.

28.1.2005

Almenningur afvegaleiddur með vinnuplaggi TR

Í opinberri umræðu um tannlæknakostnað er ósjaldan minnst á gjaldskrá ráðherra. Er þess getið að tannlæknar séu svo og svo mikið yfir þessari gjaldskrá og gefið í skyn að munurinn á gjaldskrá ráðherra og gjaldskrá tannlækna sé álagning. Þannig er gjaldskrá ráðherra óspart notuð til að lemja á tannlæknum og látið líta út fyrir að þeir séu að okra á almenningi. Áríðandi er að tannlæknar láti ekki hjá líða að útskýra þær rangfærslur sem felast í svona málflutningi og geri fólki grein fyrir hvernig í málum liggur.

28.1.2005

Framlög hins opinbera til heilbrigðismála

Heimir Sindrason, formaður TFÍ, segir að þátt fyrir fullyrðingar þess efnis að enginn niðurskurður sé í framlögum til heilbrigðis- og velferðarþjónustunnar blasi sú staðreynd við að hlutur tannlækninga í heildarútgjöldum til heilbrigðismála hefur verið að minnka.

27.1.2005

Tannverndarvika 2005

Tannlæknafélag Íslands og Lýðheilsustöð hafa ákveðið að standa saman að Tannverndarviku 2005 en hún stendur yfir frá 31. janúar til 4. febrúar næstkomandi. Þema vikunnar er tóbaksnotkun og tannheilsa með megináherslu á reykskemmdir. Markmiðið er að fá mikla umfjöllun í fjölmiðlum og að meginskilaboðin – að tóbaksnotkun og tannheilsa fari ekki saman – nái til almennings, sérstaklega 10. bekkinga grunnskóla og nemenda framhaldsskóla.

8.12.2004

Er implantameðferð án vandamála?

Fyrirlestur haldinn á Grand Hótel Reykjavík 28. og 29. janúar.

Nú eru liðin yfir þrjátíu ár síðan frumkvöðulinn P.I. Brånemark birti tímamótagrein sína um implönt. Síðastliðin áratug hefur notkun implanta í tannlækningum vaxið gríðarlega og implönt eru orðin hluti af hefðbundinni meðferð í tannlækningum
og frábær viðbót við klassiska prótetik.

6.9.2004

Upplýsingar um Janúarkúrs TFÍ

Janúarkúrs 28. og 29. janúar 2005 - Grand Hótel Reykjavík

Er implantameðferð án vandamála? 

Nú eru liðin yfir þrjátíu ár síðan frumkvöðulinn P.I. Brånemark birti tímamótagrein sína um implönt. Síðastliðin áratug hefur notkun implanta í tannlækningum vaxið gríðarlega og implönt eru orðin hluti af hefðbundinni meðferð í tannlækningum og frábær viðbót við klassiska prótetik.



Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «Febrúar 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar