Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

15.10.2011

Tannlýsingarmeðferð aðeins undir eftirliti tannlækna-ný reglugerð frá Evrópusambandinu

Sjá tilskipun EB

Töluvert hefur borið á því að fólk með enga faglega þekkingu eða menntun af nokkru tagi bjóði upp á tannlýsingarmeðferðir.   Þjónustan geti litið út fyrir að vera fagleg á yfirborðinu en sérfræðiþekking sé ekki til staðar, engar kröfur um hreinlæti, sótthreinsun eða Sjúklingatryggingar ef illa fer. Slík meðferð eigi einungis að vera í höndum sérfræðinga enda geta efnin skaðað tannhold og valdið fólki miklum óþægindum ef ekki er rétt að málum staðið . Tannlæknafélagið hefur hvatt fólk til að leita ekki til slíkra aðila frekar en annarra fúskara.

Nú hefur ESB  ákveðið að einungis tannlæknar megi framkvæma tannlýsingar með efnum sem innihalda milli 0,1- 6% af virka efninu vetnisperoxíði(H2O2).

Evrópusambandið hefur  því fylgt eftir tilmælum Evrópuvísindanefndarinnar um öryggi neytenda, sem leggur áherslu á að vörur með hærri styrk en 0,1% geti talist öruggt ef það er notað eftir ítarlega klíníska skoðun og undir eftirliti tannlæknis.


Evrópusamtök Tannlækna (CED), segir ákvörðunina mikilvæga fyrir öryggi sjúklinga, því nú sé ákveðið hvernig og af hverjum tannlýsingarmeðferðir eru gerðar  innan ESB/EES.

Frétta tilkynning CED er eftirfarandi:

"Following the Council’s decision, tooth whitening products containing up to 0.1% of hydrogen peroxide will continue to be freely available to the consumers on the market. For products containing between 0.1% and 6% of hydrogen peroxide, clinical examination and first treatment by a dentist will be required, to ensure the absence of risk factors or oral pathologies, after which the patient will be able to continue the treatment by him or herself. The use of these products by persons younger than 18 years will not be allowed. Tooth whitening products containing more than 6% of hydrogen peroxide will continue to be prohibited. The CED believes these changes will enhance patient safety by ensuring that they can only access appropriate products via a trained and qualified dental professional."

29.9.2011

Grein varaformanns Tannlæknafélagsins í Fréttablaðinu #2

29.9.2011

Grein varaformanns Tannlæknafélagsins í Fréttablaðinu #1

13.9.2011

Grein Kristínar í Morgunblaðinu

KristinHeimis-litil

Getur vont versnað ?

Kristín Heimisdóttir tannlæknir og stjórnarmaður í TFÍ ritaði grein um samninga um barnatannlækningar við hið opinbera sem birt var í Morgunblaðinu. Smellið á tengilinn til að lesa greinina.

 

sjá blaðagrein

 

10.9.2011

Af hverju nást ekki samningar við Tannlæknafélagið?

Af hverju nást ekki samningar við Tannlæknafélagið um tannlækningar barna spyrja margir.  Þetta virkar nokkuð einföld spurning en svarið við henni er nokkuð flókið og mun ég reyna að útskýra hvers vegna ekki hefur gengið að lenda þessum málum sem ætti að vera hægt á einfaldan hátt.

10.9.2011

Hver vegna hefur ráðherragjaldskrá ekki hækkað síðan 2004

Fáir hafa skilið hvers vegna svokölluð ráðherragjaldskrá hefur ekki hækkað um krónutölu frá árinu 2004.  Afleiðingin er sú að minna og minna fjármagni er veitt til tannlækninga barna og er nú í sögulegu lágmarki.  Opinber skýring er sú að embættismenn og ráðgjafar ráðherra óttast að tannlæknar hækki þá gjaldskrár sínar í kjölfarið.  Tannlæknar hafa haft frjálsa verðskrá um nokkurt skeið og keppt sín á milli í verði og þjónustu sbr. kannanir neytendasamtaka. Þetta hefur skilað því að verð á tannlæknisþjónustu hefur ekki hækkað umframvísitölur

 

10.9.2011

Rammasamningur sem tannlæknum var kynntur um tannlækningar barna og athugasemdir Tannlæknafélags Íslands.

Sjúkratryggingar Íslands kynntu fyrir tannlæknum rammasamning um tannlækningar barna 25. ágúst sl.   Tannlæknafélagið gerir verulegar athugasemdir við þennan rammasamning og hefur sett fram athugasemdir. Sömuleiðis hefur Tannlæknafélagið fengið álit Lagastofnunar Háskóla Íslands á því hvort Tannlæknafélagið geti verið aðili að samningum.

Hér má sjá rammasamninginn.

Hér má sjá athugasemdir Tannlæknafélags Íslands.

Hér má sjá álit Lagastofnunar Háskóla Íslands.

10.9.2011

Frábær myndskeið frá Lýðheilsustöð um tannvernd barna

6.9.2011

Grein varaformanns TFÍ í Fréttablaðinu 29. ágúst 2011



Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «Febrúar 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar