Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

18.5.2011

Handhreinsun í heilbrigðisþjónustu er mikilvægasta sýkingavörnin

16.5.2011

TAKO-miðstöðin, þekkingarsetur um sjaldgæfa munnsjúkdóma

Heimasíða

TAKO-miðstöðin er þekkingarsetur um sjaldgæfa munnsjúkdóma. Hlutverk miðstöðvarinnar er að meðhöndla sjaldgæfa sjúkdóma höfuðs og háls, en einnig að safna saman reynslu og þekkingu um þessa sjúkdóma á einn stað og miðla henni til tannlækna og annarra heilbrigðisstarfsmanna.

15.5.2011

Kristín Heimsdóttir tannlæknir skrifar í Morgunblaðið

30.4.2011

Viðtal við formann Tannlæknafélags Íslands í Morgunútvarpi Rásar 2

12.4.2011

Ófaglærðir aðilar dæmdir vegna tannhvíttunarmeðferðar

Breskir dómstólar dæmdu í síðasta mánuði ófaglærðan aðila til greiðslu sektar og hafa úrskurðað að um sé að ræða ólöglega meðferð sem standist ekki lög um tannlækningar þar í landi.  Dómurinn féll eftir að heilbrigðisyfirvöld sóttu viðkomandi til saka og segja að þetta komi almenningi til góða og verndi fyrir fúskurum sem hafi ekki faglega þekkingu.

Sjá hér nánar:

13.2.2011

Tannlýsingarefni - gæta þarf varúðar við notkun

Evrópusambandið leyfir ekki sölu tannlýsingarefna til almennings umfram 0,1% vetnisperoxíðs.  Sambandið ráðleggur að tannlýsingarmeðferð með sterkari efnum sé einungis framkvæmt af sérfræðingum  sem hafa til þess faglega þekkingu.   Greinargóðar upplýsingar er að finna hér

30.1.2011

Tannverndarvika 31.jan-6.feb

Fyrsta vikan í febrúar ár hvert er helguð tannvernd og í ár er áhersla lögð á glerungseyðingu og hvernig stemma megi stigu við henni.

Af því tilefni hefur Lýðheilsustöð gefið út veggspjaldið Þitt er valið þar sem lýst er á myndrænan hátt innihaldi algengustu vatns-, ávaxta- og gosdrykkja á markaðnum og áhrifum innihaldsins á tannheilsu.
Einnig hefur verið gefið út fræðslumyndband um umhirðu tanna barna, jafnt ungra sem þeirra eldri, og það talsett á ensku, rússnesku og pólsku, auk íslensku. Nýtt fræðsluefni er svo gjarnan gert fyrir leikskólabörn og yngstu börnin í grunnskóla í tannverndarvikunni og hefur það verið sent til allra leikskóla á landinu. 

17.12.2010

Hugvekja Geirs R Tómassonar heiðursfélaga í Tannlæknafélagi Íslands

Flutt í Dómkirkjunni í Reykjavík 1. desember 2010


Þín náðin,Drottinn nóg mér er
Því nýja veröld gafstu mér,
Í þinni birtu hún brosir öll
Í bláma sé ég lífsins fjöll.


Ágætu kirkjugestir – kæru vinir!
Þetta sem helst nú varast vann, varð þó að koma yfir hann. Mér varð hugsað til þessa orðtaks þegar það óvænta skeði sem kom mér, fjörgömlum sóknarnefndar-manni Dómkirkjunnar mjög á óvart að ég var beðinn að flytja hugvekju í kirkjunni, í tilefni 1. Sunnudagsins í Aðventu. Mér varð svarafátt og sagðist skyldu hugsa málið, enda allsennis óvanur til slíkra verka. En hér stend ég nú og bið ykkur að virða viljann fyrir verkið og hafa biðlund með mér, og því sem ég segi eða kann að láta ósagt í þessari hugvekju minni.

16.12.2010

Ársskýrsla S.Í.

Eftirfarandi er hlekkur á ársskýrslu Sjúkratrygginga Íslands fyrir árið 2009.
Hér



Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «Febrúar 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar