Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

13.11.2010

Ályktanir aðalfundar TFÍ.

Aðalfundur Tannlæknafélags Íslands sem haldinn var 11. nóvember sl. samþykkti eftirfarandi ályktanir. 

 1.    Tannlæknafélag Íslands skorar á stjórnvöld að virða Barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna en þar skuldbinda aðildarríki sig til að tryggja réttindi barna án mismununar af nokkru tagi. 

2.    Tannlæknafélag Íslands hvetur heilbrigðisyfirvöld til að fjarlægja fjárhagslegar hindranir barna að tannheilsugæslu og í það minnsta að nýta þær fjárveitingar sem Alþingi ákveður í fjárlagafrumvarpi.   Á síðasta ári var  300 milljóna afgangur af fjárlögum sem hefði geta nýst efnalitlum fjölskyldum. 

3.    Tannlæknafélag Íslands hvetur alla þá sem láta sig tannheilbrigði varða að taka höndum saman til endurreisnar tannheilsu þjóðarinnar.  Í nýrri heilbrigðisáætlun til ársins 2020 er kjörið tækifæri til myndarlegs átaks í tannheilsumálum sem gæti skilað þjóðinni ómældri hagkvæmni þegar fram líða stundir. 

4.    Tannlæknafélag Íslands hvetur heilbrigðisráðherra til að fara að lögum og marka stefnu í tannheilbrigðismálum.  Félagið hefur ekki séð neinar  tillögur til bættrar tannheilsu frá  heilbrigðisráðherra sem á skv .sjúkratryggingalögum að vera stefnumarkandi.  Tannlæknafélag Ísland hefur markað stefnu til bættrar tannheilsu  en ekki hefur fengist fundur með ráðherra til að kynna lausnir til úrbóta.

13.11.2010

Stjórn Tannlæknafélags Íslands 2010-2011.

Á aðalfundi félagsins 11.nóvember s.l. var Sigurður Benediktsson kosinn áframhaldandi formaður, aðrir í stjórn félagsins eru:

Stefán Hallur Jónsson varaformaður

Kristín Heimisdóttir gjaldkeri

Börkur Thoroddsen ritari

Elfa Guðmundsdóttir meðstjórnandi.

Í varastjórn eru:

Eva Guðrún Sveinsdóttir

Bjarni Sigurðsson

4.11.2010

26. Ársþing Tannlæknafélag Íslands 2010




 












Verður haldið á Hótel Hilton Nordica dagana 12. og 13. nóvember.
Yfirskrift þingsins er  "Tannlækningar 2010 - "Nýjungar"

 Dagskrá tannlækna

Á þinginu verður að finna fjölbreytta röð fyrirlestra og umræðna um nýjustu þróun á sviði tannlækninga. 
Dagskrá 26. ársþings tannlækna inniheldur fjölda fyrirlestra, kynninga og sýningu á nýjungum í tækni  til tannlækninga. 

Dagskrá tanntækna og aðstoðarfólks

Skráið ykkur fyrir 8. nóvember  
           


Árshátíð tannlækna í Turninum


Vörusýning

Uppsetning sýningarbása hefst f.h. kl. 9.00 fimmdudaginn 11. nóv.

Áríðandi er að panta alla aukahluti áður en uppsetning básanna hefst. Guðni Sigfússon hjá Sýningarkerfum ehf veitir allar upplýsingar um aukahluti í básana. gudni@syning.is


 

4.11.2010

Sjúkratrygginar Íslands taka upp rafræn samskipti

SÍ eru nú að hefja rafræna miðlun í rauntíma til veitenda heilbrigðisþjónustu um m.a. réttindastöðu sjúkratryggðra. Um áramótin opnar á www.sjukra.is Réttindagátt og Gagnagátt verður endurskoðuð.

 Sjá.

4.11.2010

Hreinn munnur mikilvægur í rómantíkinni

Ef ætlunin er að vera rómantískur, er mikilvægara að hafa hreinar tennur en að kveikja á kertum, setja á sig ilmvatn eða spila rómantíska tónlist.

Nánar hér:

23.8.2010

Skaðleg lýsingarefni tekin úr sölu á Netinu

Google, eBay og Amazon hafa samþykkt selja ekki lýsingarefni á Internetinu sem innihalda meira en 0,1% vetnisperoxíð.  Þetta gera þau eftir að upp komst, en Evrópusambandið bannar sölu á lýsingarefnum sem innihalda meira en 0,1% vetnisperoxíðs eins og áður sagði. Sjá hér

18.8.2010

Íslendingar fá birta fræðigrein í virtu tímariti.

Birt hefur verið ítarleg grein um tannátutíðni á Íslandi í tímaritinu Community Dentistry and Oral Epidemiology. Í greininni er m.a. MUNNÍS rannsókninni gerð ítarleg skil, sem sýndi fram á óásættanlega tannátutíðni á Íslandi.

 

Hægt er að nálgast greinina gegnum Landsaðgang Hvar.is

7.8.2010

Tengsl tannholdssjúkdóma og Alzheimer komin fram

Vísindamenn í New York hafa fundið hugsanleg tengsl milli tannholdssjúkdóma og Alzheimer.

Sjá nánar hér:

28.5.2010

Bursta tennurnar tvisvar á dag

Þeir sem ekki bursta tennurnar eru í 70% meiri hættu að fá hjartasjúkdóma en þeir sem bursta tennurnar tvisvar á dag. Þetta sýna niðurstöður nýrrar rannsóknar skoskra vísindamanna.

                        
  

Rannsóknin sem náði til 11 þúsund einstaklinga og stóð í átta ár, sýnir samband hjartasjúkdóma og tannhirðu.
Þeir sem ekki bursta tennurnar eru í meiri hættu en þeir sem hugsa vel um tennurnar.  Á rannsóknartímanum fengu 555 þátttakendur fyrir hjartað. Þar af létust 170 úr hjartaslagi.

Niðurstöðurnar sem birtar eru í breska læknatímaritinu The British Medical Journal staðfesta fyrri niðurstöður rannsókna um að samband sé milli sjúkdóma í munnholi og hjartasjúkdóma.  Þeir sem ekki sinntu hreinlæti í munni greindust einnig með eggjahvítu í blóði sem talið er að tengist bólgum en bólgur auka hættu á að blóðtappar myndast sem geta leitt til hjartaslags.

Þetta er í fyrsta sinn sem vísindamenn kanna hvort það skipti máli fyrir tíðni hjartasjúkdóma hve oft fólk burstar tennurnar. Tekið var tillit til annarra áhættuþátta fyrir hjartasjúkdóma, eins og þjóðfélagsstöðu, offitu, ofþyngd, reykinga og erfða og fjölskyldu sögu og niðurstaðan var skýr. Þeir sem burstuðu tennurnar tvisvar á dag voru í minni hættu en aðrir að fá hjartasjúkdóma

RÚV – Hádegisfréttir 28. Maí



Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «Febrúar 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar