Fréttir
29.1.2008
Reikningsskil til TR
Það er ljóst að tryggingaþegar geta greitt sínum tannlækni fyrir læknisþjónustu og síðan fengið styrk sinn greiddan frá Tr með beinni innlögn á bankareikning sinn. Reikningur er þá sendur Tr. Einnig getur tannlæknir sent reikning beint til Tr þannig að styrkur Tr er þá lagður inn á reikning tannlæknis. Á fundum TFÍ og Tr hefur komið fram að mikill misbrestur er á því að hægt sé að sjá á reikningum hvort um er að ræða að greiða eigi styrk Tr inn á reikning tannlæknis eða sjúklings.
Til að koma í veg fyrir þennan hvimleiða misskilning er rétt að merkja á senda reikninga hvort um er að ræða greiðslu til tannlæknis eða sjúklings. Það er hægt að gera með forritun í þeim forritum sem notuð eru eða handvirkt á reikningana. Sérstök umslög fást hjá Tr til að senda reikninga en þá verður að gæta þess að rétt meðferð sé tryggð.
29.1.2008
Benedikt verður stjórnarformaður sjúkratrygginga
Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, hefur skipað fyrstu stjórn nýrrar sjúkratryggingastofnunar sem tekur að fullu til starfa í haust. Benedikt Jóhannesson, framkvæmdastjóri, verður formaður stjórnar sjúkratryggingastofnunar, sem ætlað er að semja um og kaupa heilbrigðisþjónustu fyrir hönd heilbrigðisráðuneytisins.
26.1.2008
Frábær fundur...frábær mæting...frábærir tannlæknar!!
Í gær, fimmtudag, var haldinn fyrsti félagsfundur ársins í félagsheimilinu Síðumúla. Skemmst er frá því að segja að nærri níutíu félagar mættu til að hlusta á Peter Holbrook og Skúla Skúlason ræða um frunsur og fleiri kræsingar. Þökk sé þeim og ykkur öllum. Fundarmenn gæddu sér því næst á gómsætu sjávarfangshlaðborði og skoluðu því niður með vel gerjuðu mungáti.
Síðan var tekið til við félagsmálin. Formaður TFÍ varpaði þar á tjald merkilegum Kastljósþætti Sjónvarpsins frá því í desember þar sem formaður heilbrigðisnefndar Alþingis upplýsti um vankunnáttu sína og áhugaleysi á sviði heilbrigðismála. Fór formaður félagsins yfir ummæli sem féllu í þættinum og hvernig þau stæðust skoðun og rök. Í kjölfarið var samþykkt samhljóða tillaga stjórnar um athugasemdir við fullyrðingar formanns heilbrigðisnefndar Alþingis og stjórn falið að koma þeim í réttan farveg, í samræmi við umræður á fundinum.
Þessi fundur sannaði hversu nauðsynlegt er fyrir félagið okkar að eiga góða aðstöðu og möguleika til að ráða ráðum okkar, fræðast og kynnast. Aðeins eitt skyggði á. Það var þegar
Vert er að þakka öllum sem gerðu þenan fund svona skemmtilegan og uppbyggilegan.
Janúarkúrsus....eitthundraðþrjátíu tveir mættu !
Kúrsusnefnd félagsins getur sannarlega kæzt yfir mætingu á janúarkúrsus. Segja má að yfirskrift fyrilestranna hafi verið barnið og tennur þess og umhverfi. Er ánægjulegt hversu marga frábæra fræðimenn er að finna í stéttinni. Gamlir refir og ferskir yrðlinga, allir í góðum gír. Og áhugi félaganna kórónar þetta allt og gerir það einhvers virði. ! Til hamingju!
Félagið óskar einnig Lukas fjölskyldunni til hamingju með afmæli fyrirtækis þeirra og þakkir fyrir móttökurnar á föstudeginum.
Með kveðju Sigurjón Benediktsson, formaður
24.1.2008
Lýðheilsustöð stendur fyrir árlegri tannverndarviku 3. til 10. febrúar.
Í tannverndarviku verður athyglinni m.a. beint að munnheilsu fólks með sérþarfir en kynntur verður nýr margmiðlunardiskur með fræðsluefni um munnhirðu sem einkum er ætlaður starfsfólki á heilbrigðisstofnunum og jafnframt ölum þeim sem vinna við að fræða um heilbrigða lífshætti. Fræðsluefnið er gefið út á vegum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis og Lýðheilsustöðvar en umsjón með gerð þess hafði Hólmfríður Guðmundsdóttir tannlæknir. Margmiðlunardiskurinn býður upp á að fræðslan geti farið fram hvar sem er, þar sem aðgegni er að tölvu eða DVD spilara. Efnið er kaflaskipt og auðvelt er að velja það sem skoða á hverju sinni. Eitt megin markmiðið við gerð fræðsluefnisins er að efla þekkingu og færni þeirra sem liðsinna fötluðum, sjúkum og öldruðum við vandasöm þrif tanna og tanngerva. Bundnar eru vonir við að þannig megi efla enn frekar fagleg vinnubrögð á þessu sviði innan heilbrigðisstofnana og á öðrum stöðum þar sem liðsinna þarf fólki við tannhirðu sína.
Ef áhugi er fyrir hendi verður efnið kynnt nánar í hádeginu laugardaginn 26 janúar - í fyrirlestrasal Tannlæknafélagsins
23.1.2008
Reyklaus 2008
Reyksíminn og Lýðheilsustöð hafa ákveðið að setja af stað verðlaunasamkeppnina „Reyklaus 2008“.
Því fleiri reykingamenn sem taka ákvörðun um að hætta að reykja því betra. Að hjálpa fólki að hætta að reykja er eitt af mikilvægustu hlutverkum okkar heilbrigðisstarfsmanna til að bæta heilsu skjólstæðinga okkar.
Reyksíminn „Ráðgjöf í reykbindindi – 8006030“ rekin af Heilbrigðisstofnun Þingeyinga með stuðningi Lýðheilsustöðvar og Heilbrigðisráðuneytisins.
17.1.2008
Tilkynning til allra hestamanna og –kvenna í T.F.Í.
Okkur undirrituð langar að boða þá félagsmenn , sem áhuga hafa, í sameiginlegan reiðtúr. Vitum við af mörgum í félaginu , sem hafa hestamennskuna að áhugamáli og gaman væri að koma saman . Eru fjölskyldumeðlimir einnig velkomnir.
Hugmyndin er sú að hittast laugadaginn 09/02 kl. 14:00 í hesthúsi Gunnars Torfasonar, í Víðidal, C-tröð 5. Riðið verður hringinn í kringum Rauðavatn, yfir í Hólmsheiðina, undirgöngin yfir í Rauðhóla ,gegnum hólana yfir í Víðidalinn. Áð verður eftir þörfum. Verðum við með e-ð smá snarl í boði eftir túrinn og væri þá tilvalið að spjalla saman og skipuleggja næstu samreið. Er það von okkar að við getum komið saman reglulega í vetur.
Þeir sem áhuga hafa , mæti sem sagt hjá Gunnari . Þeir sem ekki geta mætt , en hefðu áhuga að koma með síðar, sendið Sólveigu netföng ykkar á solat@simnet.is .
Vonumst við til að sjá og heyra í sem flestum.
Kveðjur
Sólveig Þórarinsdóttir og Gunnar Torfason Tannlæknar með fleiru
23.11.2007
Tannlæknatal - 1854-2007
Tannlæknafélag Íslands hefur gefið út nýtt tannlæknatal, Tannlæknatal 1854-2007. Ritstjóri þess er Gunnlaugur Haraldsson þjóðháttafræðingur, en ritnefnd skipuðu eftirtaldir tannlæknar:
Hið nýja tannlæknatal leysir af hólmi eldri útgáfu frá 1997. Ritið er í stóru broti og vönduðu bandi, alls 596 bls. að stærð. Það inniheldur æviágrip allra íslenskra tannnlækna frá 1854, en á því ári lauk fyrsti Íslendingurinn (Grímur Þorláksson) kandídatsprófi í tannlækningum frá Kaupmannahafnarháskóla. Í ritinu eru 454 æviágrip með ljósmyndum af nær öllum tannlæknum, lífs og liðnum.
13.11.2007
Ályktanir stjórnar TFÍ
- Stjórn Tannlæknafélags Íslands lýsir því yfir að framlög hins opinbera til tannlækningatrygginga í frumvarpi að fjárlögum 2008 eru hvorki í samræmi við umræður né loforð, hvað þá í takt við hástemmdar yfirlýsingar stjórnmálamanna fyrir síðustu kosningar.
Tannlæknafélagið gekk til samninga við heilbrigðisráðuneytið með þeim formerkjum að sá samningur myndi í engu rýra aðrar styrkveitingar til tryggingaþega tannlæknatrygginga. Við það á greinilega ekki að standa.
9.11.2007
Tannlæknafélag Íslands 80 ára
Tannlæknafélag Íslands fagnar þessa dagana 80 ára afmæli sínu en félagið var stofnað í Reykjavík 30. október 1927. Hlutverk og tilgangur félagsins hefur í gegnum árin verið að efla samvinnu og einingu meðal tannlækna og gæta réttinda þeirra og hagsmuna. Félagið sér það einnig sem skyldu sína að upplýsa og fræða almenning og heilbrigðisyfirvöld um tannlækningar og tannheilsu.
Mynd












