Fréttir
27.12.2009
Aðeins tvö hundruð börn í Eskilstuna mæta ekki hjá tannlæknum.
Yfirvöld í Eskilstuna ætla að grípa til aðgerða til að ná í þau 30-40 börn sem skila sér ekki til tannlækna. Í léninu öllu eru þetta eitthvað um 200 börn.
Hér er fréttin í sænsku blöðunum
26.12.2009
Yfirborð eldri silfurfyllinga innihalda líklega óskaðlegt form kvikasilfurs
Ný rannsókn sýnir að yfirborð eldri silfurfyllinga innihalda efnasamband kvikasilfurs sem er ólíklegt að hafi skaðleg áhrif.
7.12.2009
Tímarit á Hvar.is
Viljum benda félagsmönnum á að hægt er að skoða tímaritagreinar á vefnum gegnum Hvar.is sem er landsaðgangur að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum. Hægt er að skoða m.a. tannlæknatímarit með því að fara í tímaritalista og er aðgangurinn endurgjaldslaus hjá notendum á Íslandi.
Hvar.is
24.11.2009
Ný rannsókn frá Noregi sýnir að kvenkyns starfsfólk í
tannlækningageiranum, sem komist hefur í tæri við kvikasilfur er ekki í aukinni áhættu á að fæða barn með fæðingargalla eða aðra meðgöngukvilla s.s. fósturlát.
14.11.2009
Stjórn Tannlæknafélagi Íslands 2009 - 2010
Á aðalfundi félagsins þ. 12. nóvember s.l. var Sigurður Benediktsson kosinn formaður, aðrir í aðalstjórn eru:
Stefán Hallur Jónsson varaformaður,
Kristín Heimisdóttir gjaldkeri,
Börkur Thoroddsen ritari,
Elfa Guðmundsdóttir meðstjórnandi.
Í varastjórn eru:
Eva Guðrún Sveinsdóttir
Ingibjörg Sara Benediktsdóttir
3.11.2009
Ársþing TFÍ verður haldið dagana 13. og 14. nóvember 2009
14.9.2009
Samninganefnd Tannlæknafélags Íslands og FTAT
Samninganefnd Tannlæknafélags Íslands og FTAT hafa komist að samkomulagi með 3.5% launahækkun er átti að taka gildi 1. júlí. Verður samkomulagið þannig 1.8% kemur á laun 1. ágúst n.k. og 1.7% kemur á laun 1. nóvember 2009. 2.5% launahækkun sem átti að taka gildi 1. janúar 2010 færist til 1. júní 2010.
Mynd












