Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

11.9.2009

Góður og upplýsandi fundur hjá Sigurjóni Benediktssyni.

Bestu þakkir fyrir Sigurjón. Það vöknuðu margar spurningar. Hér er krækja inn á starfsleyfisumsóknir á Norðurlöndunum og einn listi yfir lausar stöður í Noregi.

Norrænar reglur um tannlækningaleyfi

Atvinnuauglýsingar

1.9.2009

Fer fyrir tannréttingasérfræðingum

89. ráðstefna evrópskra tannréttingasérfræðinga verður haldin hér á landi í júní árið 2013. Ráðstefnan verður haldin í Tónlistar- og ráðstefnuhúsinu í Reykjavík sem til stendur að vígja í lok árs 2011.

arni thordar

Forseti samtakanna árin 2012-2013 verður Árni Þórðarson, tannlæknir og sérfræðingur í tannréttingum. Árni lauk tannlæknanámi frá Háskóla Íslands árið 1982, sérnámi í tannréttingum frá Óslóarháskóla árið 1986 og hlaut viðurkenningu The European Board of Orthodontics árið 2003. Hann var stundakennari við tannlæknadeild Háskóla Íslands og síðar lektor í tannréttingum við sömu deild til ársins 2000. »Það er mikill heiður og viðurkenning fyrir mig og kollega mína hér á landi að ég skuli hafa verið kjörinn forseti Samtaka evrópskra tannréttingasérfræðinga, fyrstur Íslendinga,« segir Árni í tilkynningu.

13.8.2009

Vagnýtar krækjur fyrir tannlækna vegna svínainflúensunnar

27.5.2009

Hjálparvaktin 23. maí

Tannlæknafélagið vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem lagt hafa fram óeigingjarnt starf á hjálparvöktum tannlækna.

Laugardaginn 23. maí var mikil aðsókn eins og áður og færri komust að en vildu.
Loka varð á skráningu eftir 45 mínútur og þurftu því miður mörg börn frá að hverfa.
Þetta var fjórða og síðasta vaktin er boltinn nú hjá stjórnvöldum.

Kærar þakkir til ykkar allra og bestu óskir um gleðilegt sumar.

minnkud007

 

19.5.2009

Tannheilsa íslenskra barna - Erum við að tala um sama hlutinn?

Grein Helga Hansonar sem birtist í Morgunblaðinu 19. maí s.l.

UNDANFARIÐ hefur farið hátt í fjölmiðlum umræða um tannvandamál hóps barna þar sem foreldrar hafa ekki séð sér fært að fara með börnin til tannlæknis undanfarin ár. Þessi hópur hefur stækkað jafnframt því sem endurgreiðsla hins opinbera á tannlæknakostnaði barna og ungmenna hefur minnkað. Það er óumdeilanlegt. Hins vegar hefur mér fundist sumir og sérstaklega stjórnmálamenn nota tækifærið til þess að beina umræðunni inn á aðrar brautir þar sem bæði forsendur og lausnir liggja ekki eins beint við. Spurningum um hvort tannheilsu íslenskra barna fari hrakandi, er réttilega velt upp og látið í veðri vaka að lausnirnar á bráðavandanum felist í meiriháttar skipulagsbreytingum og forvarnarátaki.

11.5.2009

Hjálparvaktin 9. maí

Bestu þakkir til allra þeirra tannlækna, tanntækna og tannfræðinga sem hjálpuðust að á hjálparvaktinni 9. maí. Þurftum að loka eftir klukkutíma þá var 61 barn komið á skrá. Við buðum til okkar nokkuð mörgum til að skoða ástandið og ræða við okkur og Bragi Guðbrandsson forstjóri Barnaverndarstofu mætti sem og Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir (fyrrverandi félagsmálaráðherra) og Lára Björnsdóttir formaður Velferðarvaktarinnar. Svona heimsóknir þar sem fólk sér það svart á hvítu hvernig ástandið er er mun áhrifaríkara en allar heimsins skýrslur. Morgunblaðið sendi sitt fólk og fékk þetta framtak okkar heila síðu í Mogganum. Nú er boltinn hjá ráðamönnum þjóðarinnar.

Síðasta Hjálparvaktin verður svo 23. maí.

Ingibjörg S. Benediktsdóttir

Hjálparvaktin allir

Bragi og co

Ásta Ragnheiður

21.4.2009

Áfall að sjá hve aðsóknin var mikil - Frétt í Morgunblaði 21. apríl

»ÞAÐ getur enginn heilbrigðisráðherra orðið vitni að þessari reynslu sem við urðum fyrir um síðustu helgi [í Tanngarði, húsakynnum tannlæknadeildar Háskóla Íslands], án þess að gera eitthvað,« segir Ögmundur Jónsson heilbrigðisráðherra. Áfall hafi verið að sjá hve aðsóknin og þörf þeirra sem leituðu í ókeypis aðstoð Tannlæknafélags Íslands fyrir börn og unglinga hafi verið mikil. Eftir klukkutíma voru 60 börn komin á skrá og ljóst að ekki yrði fleirum sinnt þann daginn. Skemmdir hjá sumum reyndust þá meiri en tannlækna hafði órað fyrir. »Það er alveg augljóst að ríkið verður að endurskoða aðkomu sína að þessum málum og verður að koma á miklu virkari hátt inn í tannheilsu barna og unglinga,« segir Ögmundur og kveður óheillaspor er farið var með tannlækningar út úr skólum á sínum tíma. »Það er þó ekki formið sem skiptir öllu, heldur að eftirlitinu og tannhirðunni sé fylgt eftir. Ég mun gera ráðstafanir til þess að það fari fram rannsókn og settar verði fram tillögur um hvernig þessi mál verði færð til betri vegar á eins markvissan og skjótvirkan hátt og unnt er.« Hafi hann fullan hug á að fá skýrslu um úrbætur afhenta á næstu vikum, gegni hann áfram embætti heilbrigðisráðherra.

Spurður hvort ókeypis tannlækningar fyrir börn og unglinga geti orðið að veruleika, segir hann það vissulega vera Vinstri hreyfingunni - grænu framboði keppikefli og svo verði áfram. annaei@mbl.is

Úr fréttatíma sjónvarps laugardaginn 18. apríl

18.4.2009

Myndir af hjálparvakt tannlækna 18. apríl 2009

Ekki gafst mikill tími til að mynda. En hér er hluti hópsins sem vann þetta góða sjálfboðaliðsstarf í dag. Við þökkum þeim öllum kærlega fyrir frábæra frammistöðu undir erfiðum og krefjandi aðstæðum.

hv3

Heilbrigðisráðherra Ögmundur Jónasson ásamt fríðu föruneyti kynnti sér ástandið og óhætt er að fullyrða að allir þeir sem mættu þarna í dag hafi verið verulega áhyggjufullir þegar þeir sáu hversu grafalvarlegt ástandið er. Takið eftir birtunni í kringum tannlæknana á myndinni...

allir á hjálparvakt

 

 

18.4.2009

Hjálparvakt tannlækna 18.apríl 2009

Þetta var ótrúleg vakt! Þurftum að loka eftir klukkutíma þá voru 60 börn komin á skrá. Ástandið á krökkunum sem komu í dag var mun skelfilegra en síðast. Það voru margar tennur dregnar úr í dag.
Það á ekki að þekkjast í siðmenntuðu landi að það þurfi sjálfboðaliða til að sinna tannpínu í börnum. Þetta er þjóðinni til skammar og við vonum að með þessu framtaki tannlækna vakni ráðamenn þjóðarinnar af þessum þyrnirósarsvefni.
Formaður var eins og símadama að reyna að ná í ráðamenn þjóðarinnar til að bjóða þeim að tala við fólkið í landinu og það "kraftaverk" gerðist að Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra mætti með fríðu föruneyti talaði við okkur og einhverja foreldra. Held að allir þeir sem mættu þarna í dag hafi verið hálfpartinn í losti og með kökk í hálsinum yfir þessu ástandi.
Ingibjörg S. Benediktsdóttir, formaður TFÍ
 

16.4.2009

Hjálparvakt tannlækna fyrir börn og unglinga sem búa við kröpp kjör

Tannlæknafélag Íslands og Tannlæknadeild Háskóla Íslands munu nú á laugardaginn, 18. apríl, bjóða barnafjölskyldum sem búa við kröpp kjör upp á ókeypis tannlæknaþjónustu. Þjónustan er fyrir börn og unglinga 18 ára og yngri og verður veitt milli kl. 10:00 og 13:00 í húsnæði Tannlæknadeildar Háskóla Íslands, Læknagarði, að Vatnsmýrarvegi 16. Tannlæknar buðu fyrst upp á þessa þjónustu laugardaginn 4. apríl og alls komu yfir 30 börn og unglingar í skoðun.

Fjárhagslegar aðstæður margra heimila hafa breyst til hins verra á undanförnum mánuðum og því viðbúið að mörg heimili neyðist til að spara við sig þegar kemur að tannviðgerðum og eftirliti hjá börnum. Þá er tannheilsa íslenskra barna sú versta á Norðurlöndum og íslensk börn eru að meðaltali með tvöfalt fleiri skemmdar tennur en börn á hinum Norðurlöndunum.

Því hafa tannlæknar ákveðið að koma til móts við þau heimili sem erfiðast eiga uppdráttar með sjálfboðavinnu við skoðun og viðgerðir tanna hjá börnum og unglingum. Ekki er tekið við tímapöntunum en ráðstafanir eru gerðar til þess að biðtími verði ávallt hóflegur. Nánari upplýsingar eru veittar hjá Tannlæknadeild Háskóla Íslands í síma 525-4850.

Reykjavík 16. apríl 2009.
Nánari upplýsingar:
Ingibjörg S. Benediktsdóttir, formaður Tannlæknafélags Íslands í síma 896-1547.

Féttatilkynning frá Hjálparvakt tannlækna

 

 



Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «Febrúar 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar