Fréttir
20.10.2005
Varði doktorsritgerð við tannlæknadeild
Inga B. Árnadóttir, dósent við tannlæknadeild Háskóla Íslands, varði doktorsritgerð sína, Dental health and related lifestyle factors in Iceland teenagers, við tannlæknadeildina laugardaginn 15. október síðastliðinn.
Andmælendur voru dr. Hafsteinn Eggertsson, aðstoðarprófessor við Indiana University School of Dentistry Oral Health Research Institute í Indianapolis í Bandaríkjunum, og dr. Laufey Steingrímsdóttir, sviðsstjóri rannsókna- og þróunarsviðs við Lýðheilsustöð Íslands. Prófessor Sigfús Þór Elíasson, deildarforseti tannlæknadeildar, stjórnaði athöfninni, sem fram fór í hátíðarsal Háskóla Íslands.
Meginmarkmið doktorsverkefnisins var að safna saman gögnum til þess að meta tíðni tannátu og glerungseyðingar hjá íslenskum unglingum á aldrinum fjórtán til tvítugs á þrettán ára tímabili, frá árunum 1987 til 2000. Ennfremur að kanna lífsstíl unglinga, tengja hann við tannheilsu þeirra og tengja tannheilsuna við forvarnir íslenskra tannlækna og við forvarnir norrænna tannlækna."
Mynd












