Fréttir
25.10.2005
Tannlæknafélagið styður reykingabann
Félagsfundur í Tannlæknafélagi Íslands 4. maí 2005 samþykkti samhljóða eftirfarandi ályktun sem stjórn félagsins bar upp á fundinum:
„Tannlæknafélag Íslands styður heilshugar fram komið lagafrumvarp á Alþingi um breytingu á 9. grein laga um tóbaksvarnir þar sem gert er ráð fyrir að reykingar verði óheimilar á veitinga- og
skemmtistöðum og þar sem menningar- og félagsstarfsemi fer fram, þar með talið íþrótta- og tómstundastarf. Tannlæknafélagið telur að umrætt lagafrumvarp sé í fullu samræmi við markmið félagsins að stuðla að bættri tannheilsu landsmanna.“
Á málþingi Tannlæknafélagsins fyrir skömmu var fjallað um áhrif reykinga á tannheilsuna og úrræði tannlækna. Þar kom fram að reykingar hafa skaðleg áhrif á tannheilsuna sem endurspeglast m.a. í tannholdssjúkdómum, tannlosi, slakari svörun við meðferðarúrræðum og jafnvel stórfelldum tannmissi. Þar kom ennfremur fram að samkvæmt niðurstöðum rannsókna eru þeir sem verða fyrir óbeinum reykingum allt að 60% líklegri til að fá tannholdsjúkdóma en þeir sem ekki verða fyrir óbeinum reykingum.
Mynd












