Fréttir
25.4.2005
Óbeinar reykingar hættulegar tannheilsunni
Óbeinar reykingar eru hættulegar tannheilsunni en rannsóknir sýna að þeir sem verða fyrir óbeinum reykingum eru allt að 60% líklegri til að fá tannholdsjúkdóma en þeir sem ekki verða fyrir óbeinum reykingum. Þeir sem reykja sjálfir og verða auk þess fyrir óbeinum reykingum eru í mun verri málum hvað þetta varðar en reyklausir. Þetta kom fram í framsöguerindi Dr. Helgu Ágústsdóttur tannlækni á málþingi sem Tannlæknafélag Íslands hélt á laugardag undir yfirskriftinni „ Áhrif reykinga á tannheilsuna og úrræði tannlækna “ .
Í setningarræðu sinni sagði Heimir Sindrason, formaður TFÍ, að minna hefði verið fjallað um áhrif reykinga á munnholið en aðra líkamsparta en afleiðingarnar gætu engu að síður orðið mjög alvarlegar og falist í stórfelldum tannmissi, rýrnun lífsgæða og útlitslýti. Ástæðan kynni að vera sú að um væri að ræða hljóðláta aðför að heilsunni sem endurspeglaðist síður í hefðbundnum sjúkdómseinkennum eins og vanlíðan eða almennri tilfinningu fyrir stórfelldum heilsubresti. Fólki gæti liðið bærilega þó það væri að reykja úr sér tennurnar. Einmitt þess vegna væri ástæða til að vekja fólk til vitundar um áhrif reykinga á munnheilsuna.
Á málþinginu útskýrði Sigurjón Arnlaugsson, sérfræðingur í tannholdssjúkdómum og lektor við THÍ, hvað gerðist í munnholi við reykingar. Hann sagði að reykingafólk væri líklegra til að fá tannvefssjúkdóma en reyklausir en ef fólki hætti að reykja hægði það á sjúkdómsferlinu. Þá kom fram að reykingafólk væri að jafnaði með færri tennur en reyklausir. S toðvefjatap er meira hjá þeim sem reykja en það veldur því að tennur missa festuna. Sú festa fæst ekki aftur og í versta falli missir fólk tennurnar.
Þorsteinn Blöndal lungnasérfræðingur og Valgeir Skagfjörð leikari fjölluðu um ólíkar leiðir til að hætta að reykja, þ.e. með og án lyfja. Hannes Hjartarson læknir fjallaði um reykingar og krabbamein í munni og Gunnar Sigurðsson læknir um reykingar og hjartasjúkdóma. Loks fjallaði Ingólfur Eldjárn tannlæknir um úrræði tannlækna gagnvart afleiðingum reykinga en íslenskir tannlæknar eru mjög færir á því sviði.
Mynd












