Fréttir
6.9.2004
Upplýsingar um Janúarkúrs TFÍ
En hvað hefur reynslan kennt okkur? Er implantameðferd án vandamála ?
Í janúarkúrsinum verður reynt að varpa ljósi á hvað 30 ára reynsla í implantatannlækningum hefur kennt okkur. Hvaða biologiskar og tekniskar komplicationir geta geta komið upp? Hversu algengar eru þær og hvernig getum við fyrirbyggt þær ? Einnig verður fjallað um meðferðarmöguleika, ef vandamál eins og peri-implantitis koma upp.
Kúrsinn skiptist í þrjá hluta:
- Föstudagseftirmiðdaginn 28. janúar verður fjallað um ábendingar og frábendingar fyrir implant meðferð, hvenær sjúklingar eru tilbúnir fyrir meðferð og hvernig undirbúningi fyrir aðgerðir og eftirliti eftir aðgerðir er háttað.
- Laugardagsmorguninn 29. janúar verða áhættuþættir fyrir biologiskar komplikationir ræddir og fjallað um meðferð á peri-implantitis skref fyrir skref.
- Í þriðja hlutanum verður fjallað um tekniskar komplikationir við implant meðferð og hversu algengar þær eru í samanburði við komplikationir við klassiska protetik.
Á kúrsinum verður meðferðarkonsept háskólans í Bern kynnt. Fjölmörg tilfelli verða sýnd og rætt um ábendingar og frábendingar fyrir implant prótetik svo og fyrir klassiskri krónu og brúargerð.
Fyrirlesari Bjarni E Pjetursson tannlæknir
Mynd












