Fréttir
27.1.2005
Tannverndarvika 2005
Lýðheilsustöð mun kosta prentun veggspjalds sem dreift verður í skóla, íþróttahús og aðra almenningsstaði. Einnig verður gefinn út lítill bæklingur þar sem hnykkt verður á meginskilaboðunum. Greinaskrif í dagblöð og tímarit verða skipulögð og undirbúin umfjöllun um þema Tannverndarviku í umræðu- og dægurmálaþáttum.
Stjórn Tannlæknafélagsins fer þess á leit við tannlækna um allt land að þeir leggi lóð sitt á vogarskálarnar með því að bjóða ókeypis skoðun og ráðgjöf eftir hádegi á Tannverndardaginn, föstudaginn 4. febrúar. Tilboð tannlækna um ókeypis skoðun yrði kynnt rækilega og auglýst en fólk yrði að panta tíma fyrir sig og sína. Ekki er gert ráð fyrir myndatökum. Tannlæknum er frjálst að bjóða ókeypis skoðun allan daginn og þeim er einnig frjálst að hafna þátttöku.
Samhliða skoðuninni færi fram könnun með spurningalista sem Hólmfríður Guðmundsdóttir tannlæknir og verkefnisstjóri hjá Lýðheilsustöð, hefur samið og tannlæknar útfylla. Með þeim hætti fást dýrmætar upplýsingar sem nýta má með ýmsum hætti.
Mikilvægt er að sem flestir tannlæknar taki jákvætt í þetta erindi en þannig gefst dýrmætt tækifæri til að efla ímynd tannlækna meðal almennings. Fyrir tilstuðlan tannlækna getur Tannverndarvikan, sem farið hefur heldur hljótt undanfarin ár, orðið að þungamiðju í tannverndarstarfi.
Komið hefur fram tillaga um að tannlæknanemar heimsæki nemendur 10. bekkja grunnskóla og framhaldsskóla í Tannverndarvikunni og fræði þá um tóbaksnotkun og tannheilsu. Hefur þessi tillaga fengið jákvæðar undirtektir.
Almenn þátttaka tannlækna í Tannverndarviku mun undirbúa jarðveginn fyrir fyrirhugað málþing TFÍ í vor. Málþingið verður með svipuðum áherslum en kastljósinu beint að fullorðnu fólki. Sýnt verður fram á skaðsemi reykinga en sérstök áhersla lögð á þau úrræði sem tannlæknar hafa yfir að ráða í þessum efnum, m.a. fegurðartannlækningar.
Það er einlæg ósk stjórnar TFÍ að tannlæknar taki þessu erindi með jákvæðum huga.
Mynd












