Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

28.1.2005

Almenningur afvegaleiddur með vinnuplaggi TR

Í fyrsta lagi er verðlagning tannlækna frjáls - sem þýðir að tannlæknum er frjálst að verðleggja þjónustu sína í samræmi við eigin forsendur og mega ekki hafa samráð.

Í öðru lagi er umrædd gjaldskrá markleysa í þessu samhengi. Samkvæmt áliti lögmanns Tannlæknafélagsins, Ragnars Hall hæstaréttarlögmanns, er gjaldskrá skilgreind sem skrá yfir verð sem útgefandi slíkrar skrár tekur fyrir tilgreint verk. Hann segir svokallaða gjaldskrá, sem TR notar, ekki vera slíkt plagg þar sem TR selur ekki umrædda þjónustu og gefur engum kost á þjónustunni fyrir það verð sem þar er tilgreint. Þess vegna sé verið að afvegaleiða almenning þegar talað er um gjaldskrá TR sem einhverja viðmiðun um verð fyrir verk sem þar er fjallað um. Ragnar segir gjaldskrá TR yfir tannlæknaverk ekki vera annað en vinnuplagg sem inniheldur leiðbeiningar um hve háa fjárhæð stofnunin greiðir sjúkratryggðum sem rétt eiga á greiðsluþátttöku stofnunarinnar vegna tannlæknakostnaðar.

Vinnuplagg TR er enginn möndull sem verðlagning tannlækna á að snúast um enda í engu samhengi við raunverulegan kostnað við tannlækningar. Hækkanir sem ráðuneytið boðaði breyta engu um eðli þessa vinnuplaggs.


Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «Febrúar 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar