Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

28.1.2005

Frá aðalfundi

Góður fjárhagur
Auk kosninga í stjórn og nefndir, sem getið er um annars staðar í blaðinu, var gerð grein fyrir reikningum félagsins. Fram kom að fjárhagur félagsins væri góður enda hefði stjórnin tekið við góðu búi frá fráfarandi stjórn. Tóku löggiltir endurskoðendur, Ernst og Young, sérstaklega fram að að bókhald félagsins væri vel skipulagt og aðgengilegt og afstemmingar vel unnar. Þakkaði fundurinn Anný fyrir vönduð vinnubrögð.

Tap ársins var kr. 300.000.- á móti 2ja milljóna króna hagnaði árið 2002. Megin ástæðan er lægri tekjur af þátttökugjöldum vegna ársþings og kúrsfunda.

Reikningar félagsins voru bornir undir fundinn og samþykktir með þorra greiddra atkvæða.

Endurkjósa má formann
Gerð var breyting á lögum félagsins þess efnis að endurkjósa mætti formann ef hann hlyti til þess fylgi félagsmanna. Tillaga um nýja setningu í lagagrein um formannskosningar hljómar þannig, eftir að hafa verið samþykkt með 41 atkvæði gegn 16: „Formaður skal kosinn til tveggja ára og má endurkjósa einu sinni“.

Selja á félagsheimilið
Á fundinum var samþykkt tillaga, með 32 atkvæðum gegn 20, um að selja ætti félagsheimili TFÍ á 3. hæð að Síðumúla 35. Var þorri félagsmanna samþykkur því að fjármunir af sölunni rynnu í undirbúningssjóð til kaupa á nýju félagsheimili.

Nýir félagar
Heimir Sindrason bauð þrjá nýútskrifaða tannlækna velkomna í félagið, þá Erling Valdimarsson, Hlyn Þór Auðunsson og Kristin Kristinsson. Fundarmenn tóku undir með lófaklappi.

Látinna félaga minnst
Á aðalfundinum bað formaður fundarmenn að rísa úr sætum og minnast tveggja mætra félagsmanna sem létust á þessu ári, þeirra Jóns Kr. Hafstein og Péturs Svavarssonar.


Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «Febrúar 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar