Fréttir
2.2.2005
Reykingar frábær leið til að losna við tennurnar
Á þessum tíma var lítil umræða í þjóðfélaginu um skaðsemi reykinga. Ég var reyndar svo heppinn að þegar ég átti ekki sígarettur dugði mér ágætlega að japla á eldspýtum. Fíknin í tóbakið náði ekki heljartökum á mér. Í dag er hins vegar nokkur umræða um skaðleg áhrif reykinga, ekki síst fyrir hjarta- og æðakerfi líkamans og styttan líftíma vegna þeirra. Þessi umræða ætti að forða þeim sem eru að byrja á fikti frá því að ánetjast tóbaki en því miður byrja alltof margir að reykja á hverju ári.
Skaðinn vegna reykinga er sjaldnast mjög sýnilegur. Að vísu er talað um viskírödd og gráleitt útlit, grófa húð og hóstakjöltur. En þar sem líkaminn er alltaf að endurnýja sig er sá skaði að mestu afturkræfur ef reykingum er hætt nógu snemma. Tennurnar eru hins vegar undantekning í þessu samhengi. Fullorðinstennurnar koma bara einu sinni og þær þurfa að endast okkur alla ævi.
Tannfestan skaðast
Hver tönn situr föst í beini í munninum. Fínofið net sina sér um að festa tönnina við beinið. Þetta sinanet virkar eins og dempari, dregur úr hættu á að tönnin brotni en gefur einnig skilaboð út í beinið um að styrkja það fyrir átökin sem fylgja því að tyggja. Til að tennurnar gegni hlutverki sínu og haldist heilbrigðar verður tannholdið einnig að vera heilbrigt. Reykingar eru mikill skaðvaldur í þessu samhengi. Reykingar valda samdrætti í háræðum í munni og hindra blóðflæði til þessa svæðis. Afleiðingarnar eru að beinið rýrnar smám saman og sinar tannanna missa festuna. Líkaminn getur ekki endurnýjað tannfestuna og því verður skaðinn af völdum reykinga varanlegur. Gallinn er að það líður töluverður tími þar til skaðinn verður sýnilegur.
Þær útlitsbreytingar sem helst má tengja langvarandi reykingum eru meira bil á milli tanna og lengri tannhálsar. Einnig litaðar tennur, sérstaklega tannhálsarnir sem eru jafnframt viðkvæmari fyrir tannskemmdum. Þetta þýðir að fimmtugur einstaklingur getur litið út eins og hann sé sextugur. Því meira sem reykt er því meiri verður beinrýrnunin og um leið líkurnar á að tapa tönnunum. Reykingar eru öruggasta leiðin til að tapa tönnunum. Pakki á dag dugir.
Tannlæknafélag Íslands og Lýðheilsustöð standa saman að Tannverndarviku í ár þar sem megináhersla er lögð á að kynna skaðsemi tóbaksnotkunar fyrir tannheilsuna. Tannlæknar hafa enn fremur ákveðið að bjóða almenningi ókeypis skoðun og ráðgjöf eftir hádegi á Tannverndardaginn, föstudaginn 4. febrúar, og er reykingafólk sérstaklega boðið velkomið. Lista yfir tannlækna sem taka þátt í átaki á Tannverndardaginn og fyrirkomulag þess má sjá í dagblaðaauglýsingum og á vefsíðunni www.tannsi.is.
Höfundur er formaður Tannlæknafélags Íslands.
„Líkaminn getur ekki endurnýjað tannfestuna og því verður skaðinn af völdum reykinga varanlegur.“
Mynd












