Fréttir
2.2.2005
Tóbak og munnslímhúð
Erting frá hita tóbaksreyksins ásamt rúmlega 60 ertandi efnasamböndum sem fundist hafa í tóbaksreyk leiða til þess að slímhúðin þykknar og verður hvítari. Þó að þykknun af þessu tagi sé oftast meinlaus eru nokkur svæði í munninum sem eru mjög viðkvæm fyrir þessu og þar getur skapast hætta. Þannig getur frumubreyting og jafnvel myndun krabbameinsæxla átt sér stað innan slíkra hvítra bletta, til dæmis á munnbotni eða í kinnslímhúð. Notkun áfengis ásamt tóbaksneyslu getur aukið þessa hættu enn frekar. Ef blettir af þessu tagi koma fram á munnslímhúðinni er nauðsynlegt að rannsaka þá nánar, til dæmis með vefjasýnatöku. Algengt er að slíkir slímhúðarblettir séu sýktir með gersveppum og eykur það hættu á krabbabeini enn frekar.
Tóbaksnotkun er að auki einn meginorsakaþáttur tannholdsbólgu og verður sá vandi efni umfjöllunar væntanlegrar greinar frá samkennara mínum við Tannlæknadeild Háskóla Íslands.
Notkun munntóbaks hefur aukist hér á landi síðustu misseri þrátt fyrir að sala þess og dreifing hafi verið bönnuð með lögum árið 2002. Um er að ræða fínmalað munntóbak sem er annars eðlis en sú tegund munntóbaks sem algeng var á árum áður. Tóbaksform þetta er sérstaklega vinsælt í Svíðþjóð og er stundum kallað „snus“. Þar hefur notkun efna af þessu tagi mikið verið rannsökuð með áherslu á samspil snus- og munnkrabbameins. Í ljós hefur komið að sú hætta virðist ekki eins mikil og talið var í upphafi. Helsti vandinn varðandi snus er þó hversu ávanabyndandi efnið reynist vera. Einstaklingur sem hættir neyslu munntóbaks, af þessu tagi, þarf iðulega að reykja mikið til að fá sömu nikótín áhrif.
Hlutverk tannlækna í baráttunni gegn reykingum hlýtur sífellt meiri viðurkenningu (sjá m.a. European Journal of Dental Education 8.tbl. viðauki 4, September 2004) og og eru varnir gegn reykingum nú í auknum mæli hluti af námskrám tannlæknaskóla. Einnig er unnið að því markmiði, að minnsta kosti í Evrópu, að auka þekkingu almennings á þeim skaða sem tóbak getur valdið á munnholi.
Peter Holbrook
Höfundur er prófessor við Tannlæknadeild Háskóla Íslands
Mynd












