Fréttir
4.3.2005
Reykingar og tannheilsa
Ekki er vanþörf á að leggja á það áherslu að tóbaksnotkun hefur skaðleg áhrif í munnholi eins og annars staðar í líkamanum. Þetta er svið sem lítið hafði verið rannsakað í upphafi síðasta áratugar en nú er komið gott safn rannsókna sem sýna að reykingar hafa mjög skaðleg áhrif á tannveginn, sem í almennu tali er betur þekktur sem tannholdið. Þessi skaðlegu áhrif eru svo sterk að reykingar hafa verið settar efstar á lista yfir óvini tannholdsins. Faraldsfræðilegar rannsóknir sýna svo mikla stigmögnun tannholdssjúkdóma eftir því hvað fólk reykir mikið og hvað það hefur reykt mikið samanlagt yfir ævina, að enginn annar áhættuþáttur sýnir jafnmikið samband við sjúkdóminn. Þar á ofan hefur verið sýnt fram á marktæk tengsl óbeinna reykinga við tannholdssjúkdóma.
Reykingar virðast hafa bæði staðbundin áhrif líkt og notkun munntóbaks og einnig kerfisáhrif á líkamann. Því miður eru þessi áhrif oft þannig að þau dylja einkenni sjúkdómsins. Nikótín veldur t.d. þrengingu háræða sem dregur úr blóðstreymi. Þetta veldur því að fólk getur verið með tannholdsbólgur án þess að verða þeirra vart, því það blæðir ekki úr tannholdinu við tannburstun. Síðan geta tennur losnað að því er virðist fyrirvaralaust, vegna þess að sjúklinginn grunar ekki að hann sé með sjúkdóminn. Reykingar hafa auk þess bælandi áhrif á hvít blóðkorn sem veikir eðlilegar varnir líkamans.
Tannlæknar vita hversu slæm áhrif notkun tóbaks hefur á sárgræðslu í munni og hversu erfið meðferð tannholdssjúkdóma verður ef sjúklingurinn hættir ekki tóbaksnotkun. Ígræðsla tannplanta er auk þess ekki ráðlögð ef einstaklingurinn reykir. Tannlæknar reyna því af öllu megni að hvetja og aðstoða skjólstæðinga sína til að hætta notkun tóbaks í tannverndarvikunni sem endranær.
Dr. Helga Ágústsdóttir, tannlæknir
Mynd












