Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

6.4.2005

Doktorsvörn við tannlæknadeild Háskóla Íslands

Rannsóknin fór fram á tannlæknadeild Háskóla Íslands. Markmið rannsóknarinnar var að kanna tíðni bitskekkju hjá sex ára gömlum íslenskum börnum á afsteypum af tönnum þeirra og kjálkasneiðmyndum. Ennfremur að kanna form og stærðir andlitsbeina og höfuðkúpubotns á hliðarröntgenmyndum og var markmiðið jafnframt að skoða þær breytingar sem urðu á þessum þáttum frá sex til sextán ára aldurs. Auk þess voru form og stærðir andlitsbeina og höfuðkúpubotns rannsökuð hjá foreldrum barnanna. Þannig var skapaður grunnur til að reikna erfðastuðul, m.t.t. forms og stærða andlitsbeina og höfuðkúpubotns, sex og sextán ára íslenskra barna við foreldra sína. Niðurstöður rannsóknarinnar staðfesta að tíðni b itskekkju hjá sex ára íslenskum börnum er í samræmi við það sem finnst hjá sama aldurshópi í Norður-Evrópu og hjá hvítum börnum í Norður-Ameríku. Lítill munur er á formi andlitsbeina og kúpubotns íslenskra sex ára drengja og stúlkna en mismunur var á formi höfuðkúpubotns eftir bitskekkju. Rannsóknin staðfestir aldurstengdar breytingar á formi og stærð andlitsbeina og kúpubotns frá sex til sextán ára hjá báðum kynjum. Rannsóknin staðfestir einnig kynjamun á formi og stærð andlitsbeina og kúpubotns fullorðinna Íslendinga. Sýnt var fram á að erfðastuðull stúlkna við foreldra er hærri en erfðastuðull drengja. Erfðastuðull drengja er hærri við mæður sínar.

Leiðbeinandi var dr. Þórður Eydal Magnússon, professor emeritus. Í doktorsnefnd sátu auk Þórðar, dr. W. Peter Holbrook, professor við tannlæknadeild Háskóla Íslands og dr. Sigurður Rúnar Sæmundsson.

Rannsóknin var styrkt af Rannsóknasjóði Háskóla Íslands, Rannsóknanámssjóði og Rannsóknasjóði Íslands.


Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «September 2010» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar