Fréttir
9.5.2005
Framfarir í meðferð tannáverka
Ásgeir segir við Mbl. að í kringum 1960-1970 hafi tönnum sem duttu úr yfirleitt verið hent enda hefði reynslan sýnt að tennur sem komið var fyrir losnuðu gjarnan nokkrum mánuðum eða árum síðar. Á þinginu hafi hins vegar verið sýnt fram á að hægt er að koma tönn fyrir aftur ef það er gert nógu fljótt. Fram kom í viðtali við Jens Andreasen að Íslendingar væru síst eftirbátar annarra þjóða þegar kemur að tannlækningum enda íslenskir tannlæknar vel menntaðir.
Mynd












