Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

9.5.2005

Tannlæknafélagið styður reykingabann

skemmtistöðum og þar sem menningar- og félagsstarfsemi fer fram, þar með talið íþrótta- og tómstundastarf. Tannlæknafélagið telur að umrætt lagafrumvarp sé í fullu samræmi við markmið félagsins að stuðla að bættri tannheilsu landsmanna.

Á málþingi Tannlæknafélagsins fyrir skömmu var fjallað um áhrif reykinga á tannheilsuna og úrræði tannlækna. Þar kom fram að reykingar hafa skaðleg áhrif á tannheilsuna sem endurspeglast m.a. í tannholdssjúkdómum, tannlosi, slakari svörun við meðferðarúrræðum og jafnvel stórfelldum tannmissi. Þar kom ennfremur fram að samkvæmt niðurstöðum rannsókna eru þeir sem verða fyrir óbeinum reykingum allt að 60% líklegri til að fá tannholdsjúkdóma en þeir sem ekki verða fyrir óbeinum reykingum.


Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «Febrúar 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar