Fréttir
8.8.2006
Vegna kennitölu á reikningum. Athugasemd frá TR
Æ fleiri tannlæknar stofna nú fyrirtæki um rekstur sinn og er það vel. Um leið búa þeir til ný reikningsform og stimpla þar sem kennitala tannlæknisins sjálfs kemur ekki fram og það er ekki nógu gott því það tefur afgreiðslu og kostar hringingar á stofurnar því kennitala tannlæknisins - ekki fyrirtækisins - er aðalatriðið í afgreiðslu reikninga hjá TR. Vinsamlega bendið tannlæknum á bæta úr þessu sem fyrst.
Mynd












