Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

14.12.2006

Lobbýistar gosdrykkjaframleiðenda vinna sigur

Sykurlaust gos er í sókn

Sykurlausir og sykurskertir gosdrykkir seljast nú meira en sykraðir gosdrykkir og hefur svo verið frá því snemma árs 2005. Þá vex sala á vatni jafnt og þétt. Þetta má lesa úr upplýsingum sem Capacent Markaðsgreining hefur safnað um sölu kolsýrðra drykkja, eða gosdrykkja, í matvörumörkuðum undanfarin þrjú ár.

Capacent fær nú vikulega sölutölur um fjölda vöruflokka frá um 95% verslana á dagvörumarkaði og vinnur úr þeim í samvinnu við AC Nielsen, sem er leiðandi fyrirtæki á sviði markaðsupplýsinga.

Sem kunnugt er gagnrýndi Lýðheilsustöð nýlega að gosdrykkir og sykraðir svaladrykkir skyldu ekki vera undanskildir niðurfellingu vörugjalds.

Ekki þörf á opinberri stýringu

"Þessi tölfræði svarar bölsýninni sem kemur fram í áliti Lýðheilsustöðvar," sagði Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar ehf. "Það þarf ekki þessa neyslustýringu. Markaðurinn fer þangað sem hann vill. Við þurfum ekki ríkið til að segja okkur hvert við eigum að fara. Við förum þangað sem fólkið vill og höfum verið að koma með nýja drykki á markað sem hafa ýtt undir þessa breytingu. Fyrir tveimur árum tókum við þá afstöðu að allar vörur sem við myndum þróa ættu að hafa hollustu og heilbrigði að leiðarljósi. Við komum með vörur eins og Kristal Plús og nú síðast Kristal Sport. Kristall Plús er nú annar söluhæsti gosdrykkurinn í hálfslítra umbúðum. Tilkoma hans ýtir undir þessa þróun." Andri Þór sagði einnig að sykur hafi einnig verið minnkaður í sumum drykkjum og sneitt hjá sykri í öðrum drykkjum. Í nýjum drykkjum, sem verið er að þróa fyrir næsta ár, verður enginn sykur.

Árni Stefánsson, forstjóri Vífilfells hf., sagði það afstöðu flestra að opinber neyslustýring væri óþörf. Fyrirtæki sitt svaraði þeirri eftirspurn sem væri á markaðnum eftir hollustu frekar en óhollari vöru.

"Þetta hefur gerst annars staðar á þróuðum mörkuðum í heiminum að neyslan hefur farið í sykurlausa eða sykurskerta drykki og eins vatnið. Sama þróun er að verða hér," sagði Árni. Hann kvaðst búast við að þessi þróun héldi áfram og sala sykursnauðra eða sykurlausra gosdrykkja ykist enn.

Af línuritunum má sjá að sykurtoppar rísa um jól og páska. Þá virðist fólk fremur láta eftir sér að drekka sykraða drykki en í annan tíma. Sala á Egils-appelsíni og Coca Cola mun eiga stærstan þátt þessum sykurtoppum.

 


Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «September 2010» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar