Fréttir
14.12.2006
Tölvur, lyklaborð og tannlækningar
Þörf uppfinning - Lyklaborð og tannlækningar
Þorkell @ 18.57 28/09/2004
Hér er í raun ekki beint um "uppfinningu" að ræða heldur útfærslu. Ég lendi oft í því að tannlæknar fara að ræða við mig eftir að þeir eru búnir að troða bómull upp í munninn og strengja dúk yfir. Það er vægast sagt erfitt að svara jafnvel einföldustu spurningum þannig.
Því skil ég ekki hvers vegna tölvulyklaborð og skjár fylgir ekki öllum tannlæknastólum. Þeir sem kunna fingrasetningu gætu því svarar öllum spurningum með því að nota lyklaborðið og myndi það birtast á skjá fyrir ofan. Nú svo gæti sjúklingurinn lagt kapal, vafrað á netinu eða horft á kvikmynd þegar tannlæknirinn er ekki að spyrja hann spjörunum úr
Mynd












