Fréttir
4.1.2007
Verðbólga 7% á árinu?
7%
Tólf mánaða verðbólga niður í 7%
►
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,04% í desember►
Vísitala neysluverðs án húsnæðis er óbreytt milli mánaða►
Tólf mánaða verðbólga mælist nú 7%Vísitala neysluverðs (VNV) hækkaði um 0,04% í desember sem er talsvert minna en spár greiningaraðila gerðu ráð fyrir. Greiningardeild hafði gert ráðfyrir 0,2% hækkun milli mánaða en frávikið skýrist af því að matvara og fatnaður lækkar talsvert milli mánaða þvert á spár deildarinnar. Tólf mánaða verðbólga mælist nú 7% en var 7,3% í nóvember. Vísitala neysluverðs án húsnæðis helst óbreytt milli mánaða sem endurspeglar að hratt hefur dregið úr verðbólguþrýstingi í hagkerfinu.
Mynd












