Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

16.1.2007

TFÍ gerir athugasemd við svar heilbrigðisráðherra

Húsavík 10.janúar 2007

 

Heilbrigðisráðherra Siv Friðleifsdóttir

Formaður heilbrigðisnefndar Alþingis

Forseti Alþingis, Sólveig Pétursdóttir

Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður

 

Efni : Athugasemdir Tannlæknafélags Íslands vegna skriflegs svars heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur alþingismanns

133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 469  —  112. mál.

 

Spurt var:

1.      Hversu há var endurgreiðsla vegna tannlæknakostnaðar barna og unglinga á árinu 2005 sundurliðað eftir þessum aldurshópum:
                a.      að 6 ára aldri,
                b.      7–12 ára,
                c.      13–17 ára?
        Hve hátt er hlutfallið af heildartannlæknakostnaði?


Svar ráðherra birtist þannig í þingtíðindum: 

Samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun ríkisins greiddi stofnunin eftirfarandi upphæðir vegna tannlæknaþjónustu barna á tilgreindum aldri árið 2005. Hlutfall endurgreiðslu er reiknað út frá því heildarverði sem gefið var upp á reikningum sem bárust Tryggingastofnun ríkisins.
    Tölurnar eru fyrir almennar
tannlækningar barna og unglinga, einnig barna með umönnunarbætur í flokkum 1, 2 og 3 og barna á sambýlum og vistheimilum. Í þeim eru ekki teknar með greiðslur Tryggingastofnunar ríkisins vegna tannréttinga eða annars sem afgreitt er út á umsóknir og skv. 33. gr. laga um almannatryggingar. Tryggingastofnun ríkisins endurgreiðir reikninga allt að fjögur ár aftur í tímann og því geta þessar tölur breyst.

Aldur barna

Endurgreitt af Tryggingastofnun

Hlutfall af heildarverði
á reikningi

0–6 ára

107 millj. kr.

61%

7–12 ára

223 millj. kr.

60%

13–17 ára

199 millj. kr.

59%

 

Tannlæknafélag Íslands (TFÍ) gerir eftirfarandi athugasemdir við ofangreint svar

 

TFÍ vill vekja á því athygli að gjaldskrá tannlækna er frjáls og aðeins háð samkeppnislögum og lögum um almenn viðskipti.  Samráð um verðlagningu er ólöglegt og óraunhæft að reikningar tannlækna séu eitthvað ákveðið hlutfall af styrkveitingum Tr. Því er út í hött að finna einhverja “verðlagningu“ tannlækna út frá reikningum sem Tr berast frá sjúklingum tannlækna.

Tr styrkir nokkrar tannlæknisaðgerðir samkvæmt styrkjakerfi  sem ákveðið er einhliða af heilbrigðisráðherra. Upphæð reiknings tannlæknis fyrir veitta þjónustu er í engu sambandi við þá styrkveitingu. Endurgreiðsluliðir Tr eru auk þess takmarkaðir og ná hvorki yfir alla læknismeðferðir né öll úrræði tannlækna, sem fram koma á reikningum fyir veitta læknisþjónustu.

Hvergi er að finna heimildir eða ástæður til þess að að Tr sinni verðlagseftirliti á frjálsum sjálfstætt starfandi heilbrigðisstéttum og Tr verður aldrei álitinn hlutlaus aðili í því sambandi enda eru aðrir aðilar til þess bærari.. Til þess má nefna Neytendasamtökin, ASÍ og  fyrirtæki sem sérhæfa sig í könnunum og fleiri.

TFÍ telur ástæðu til að  skoða heimildir Tr til að rannsaka trúnaðarreikninga tannlækna og sjúklinga þeirra í þessu tilliti og með hliðsjón af persónuvernd og lögum og reglum um tannlækningar og hlutverk Tr.

Verðlagning tannlæknaþjónustu er ekkert leyndarmál. Tannlæknum ber að birta á stofum sínum verðskrá sem sjúklingar og áhugasamir hafa aðgang að, og aðhald neytenda gegnir því stóru hlutverki í verðlagningu og verðlagseftirliti á tannlæknaþjónustu eins og annarrar þjónustu, þó slíkt gildi ekki um aðra læknisþjónustu.

 TFÍ bendir því á, að  í ofangreindu svari heilbrigðisráðherra eru meinlegar villur og rangtúlkanir .

 

 

2. Spurt var:

2.      Liggur fyrir rannsókn á tannheilsu barna og unglinga sem hófst á skólaárinu 2004–2005 en boðað var að niðurstaða hennar mundi liggja fyrir um sl. áramót? Ef svo er, hverjar eru helstu niðurstöður?

 Í svar i ráðherra er m.a. birt eftirfarandi tafla með neðangreindum skýringum:

....  Verið er að samlesa röntgengreiningu við sjónræna greiningu og líklegt þykir að tannátustuðlar fyrir þennan aldurshóp eigi eftir að hækka þar sem margar tannskemmdir sjást aðeins á röntgenmyndum en ekki með berum augum, en ofangreindar niðurstöður byggjast á sjónrænni greiningu einvörðungu.............Til samanburðar eru hér birtir sambærilegir (leturbr. TFÍ) tannskemmdastuðlar D3MFT á Norðurlöndunum samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO).

D3MFT 12 ára barna á Norðurlöndunum.

Land

D3MFT
12 ára barna

Ár

Danmörk

0,8

2005

Finnland

1,2

2000

Noregur

1,5

2000

Svíþjóð

1,1

2002

Ísland

1,4

2005

 

 

Tannlæknafélag Íslands (TFÍ) gerir eftirfarandi athugasemdir við ofangreint svar:

 

Tölur í töflunni eru EKKI sambærilegar þar sem birtar niðurstöður DMFT frá öðrum löndum eru í flestum  tilfellum  byggðar á sjónrænni og röntgen greiningu en talan fyrir Ísland er byggð á sjónrænni greiningu eingöngu, eins og kemur fram í svari ráðherra. Reikna má með að tanntala fyrir Ísland hækki a.m.k. um einn flöt skemmdan eða eina tönn skemmda með röntgen greiningu til viðbótar  sjónrænni greiningu og sambærileg tanntala  DMFT 12 ára einstaklinga á íslandi við Norðurlönd sé þannig nær 2-2,5 en ekki 1,4.

 

 

 

Fh Tannlæknafélags Íslands

Sigurjón Benediktsson, formaður

 

 

 


Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «September 2010» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar