Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

27.2.2007

Listahátíð tannlækna í tilefni af 80 ára afmæli félagsins.

Til stendur m.a. að halda þarna e.k.  “listahátíð tannlækna” og jafnvel standa fyrir útgáfustarfssemi ef heimtur á hugverkum verða góðar. 

Því er hér með auglýst eftir hugverkum af hvaða tagi sem er. Einkum er sóst eftir: 

  1. Ljóðum, gamansögum, frumsömdum smásögum, textum við lög og hvaðeina þess háttar.
  2. Myndverk af öllum fáanlegum sortum. Sóst er eftir myndverkum eftir tannlækna og ættingja þeirra, sem ætlunin er að hafa til sýnis.Ekki síður er sóst eftir myndverkum sem börn hafa búið til fyrir sína tannlækna. Ætlunin er að halda sérstaka sýningu á slíkum verkum, enda hafa þau oft ómótstæðilegan “sjarma” til að bera.
  3. Lögum, tónverkum af öllu tagi, hvort heldur er rapp eða tónverk fyrir sinfóníu á 17 pöllum. (Gaman væri ef einhver gæti samið “einkennis- eða baráttusöng” TFÍ)

Hugverkum má koma á framfæri við Anný á skrifstofu TFÍ
e. tannsi@tannsi.is,

eða undirritaðan
Gunnar O.Rósarsson
c/o Tanngo ehf
Vegmúla 2
108 Reykjavík
e. gunniros@mmedia.is
s.5883113


Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «Febrúar 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar