Fréttir
28.3.2007
Vegna fréttar Tr um verðlagningu tannlæknaþjónustu
Verðlagning tannlækna er frjáls en er háð samkeppnislögum og reglum. Þannig er verðsamráð ólöglegt.
Aðrar stofnanir og fyrirtæki eru betur til þess fallin að gera slíkar verðkannanir. Benda má á Neytendasamtökin, fjölmiðla og sérstök fyrirtæki á þessu sviði.
Varla er það traustvekjandi að greiðslustofnunin Tryggingastofnun ríkisins sé að eyða tíma og peningum opinberrar stofnunar í að fara yfir reikningsupphæðir á tannlæknareikningum þegar styrkur greiðslustofnunarinnar er nákvæmlega skilgreindur í Styrkjagjaldskrá ráðherra yfir tannlækningar tryggingaþega. Auk þess er fullt af aðgerðarliðum tannlækna sem Tryggingastofnun styrkir ekki, en koma að sjálfsögðu fram á reikningi tannlækna til sjúklinga.
Ef stofnunin er að undirbúa tilboð til tannlækna vegna yfirlýsinga heilbrigðisráðherra um “ókeypis” forvarnarskoðun þá er þetta allt skiljanlegt. Þessi skoðun á líklega að vera ókeypis þannig að tannlæknar fái ekki greitt fyrir hana, sem sagt ókeypis fyrir Tryggingastofnun ríkisins. Rétt er að minna á að það eru tryggingaþegar en ekki tannlæknar sem eiga rétt á og þiggja þennan styrk. Vert er að athuga að samkvæmt samkeppnislögum er ólöglegt að bjóða verð sem er undir kostnaðarverði og í töflu Tryggingastofnunar er mýgrútur af dæmum um undirboð sem skekkja eðlilega samkeppni. Sem dæmi má nefna töku, framköllun og greiningu og varðveislu röntgenmyndar sem stofnunin fagnar að kosti 248 krónur hjá tannlæknum. Hjá hversu mörgum tannlæknum eða á hve mörgum reikningum þessi tala kemur fram gefur stofnunin ekki upp, enda er upphæðin fráleit. Hvað kostar svona röntgen mynd á sjúkrahúsum? Annað dæmi er ísetning eins tannplanta sem Tr telur eðlilegt að kosti 15.685 krónur þegar aðeins efniskostnaður sem er innifalinn í gjaldskrá ráðherra nemur ekki undir 32.000 króna.
Það vita allir sem skipti eiga við þessa stofnun (árlegur kostnaður 1,3 milljarðar) að þar á bæ svífast menn einskis til að “spara” í heilbrigðiskerfinu. Árangur “sparnaðarins” bitnar ekki á tannlæknum eða læknum heldur sjúklingum og heilsu þeirra. Það er sorglegt. En staðreynd.
Ég vil svo að lokum hvetja sjúklinga tannlækna til að kynna sér og bera saman verð og gæði tannlæknaþjónustunnar og gera sanngjarnan samanburð á verðlagningu tannlækna. Það þarf ekki hludrægt verðlagseftirlit frá Tryggingastofnun ríkisins til að kynna sér verðlagningu tannlækna.
Mynd












