Fréttir
29.3.2007
Þróun tannlæknakostnaðar
Samningurinn rann úr gildi hinn 31. okt. 1998. Þá var tímaeininingin kr. 1400.
Félagsfundur TFÍ samþykkti nýjan samning hinn 21. nóv. 2002. Í kjölfarið tók við einhliða gjaldskrá ráðherra hinn 1. jan 2003. Endurgreiðsluliðum var fækkað og settar takmarkanir á endurgreiðslur. Endur-greiðslan átti að hækka um 20 – 22% á flestum endurgreiðsluliðum.
Tímaeining í gjaldskrá ráðherra kr. 1710.
Tillaga SB (núverandi formanns TFÍ) um að fella samninginn var samþykkt á félagsfundi TFÍ hinn 20. mars 2003 og rann samningurinn út hinn 1. okt. 2003.
Hinn 1. nóv. 2004 hækkaði ráðherra styrktargjaldskrá sína um 4%. Tímaeining kr. 1780.
Gjaldskrá ráðherra hefur því hækkað um heil 27% á níu árum (1998-2007)
Á sama tíma hefur vísitala neysluverðs hækkað um 61% og launavísitala um 123%
Á sama tíma 1998-2007 hafa útgjöld heimilanna til tannlækninga hækkað úr 5351 krónu á íbúa í 5555 kr /íbúa á verðlagi í mars 2007 eða um 4%
Á sama tímabili hefur önnur heilbrigðisþjónusta hækkað úr 209.075 kr /íbúa 1998 í 326.835 kr/íbúa 2007 eða um 57% allt miðað við verðlag í mars 2007.
Árið 1998 var einn tannlæknir fyrir hverja 1017 íbúa og einn læknir fyrir hverja 303 íbúa en árið 2004 voru samsvarandi tölur 1019 og 277.
Tannlæknakostnaður hefur því almennt alls ekki fylgt hækkunum á vísitölum eða hækkunum í heilbrigðiskerfinu.
FÉLAGIÐ ÞARF GREINILEGA Á RÁÐA BÓT Á ÞVÍ EÐA FINNA Á ÞVÍ SKÝRINGAR. EINNIG MUN FÉLAGIÐ BREGÐAST VIÐ ÓLÖGLEGUM UNDIRBOÐUM TANNLÆKNA ÞAR SEM UPPGEFIÐ VERÐ TANNLÆKNIS NÆR EKKI EINU SINNI EFNISKOSTNAÐI
Hvar í heilbrigðiskerfinu er gefin ábyrgð á læknisverkum ? Hvergi.
Með einhliða ákvörðun Tr eru mörg tannlæknisverk ekki styrkt af Tr nema liðin séu þrjú ár frá fyrri aðgerð. Venjan í almennum viðskiptum er að ábyrgð er tekin í eitt ár og þá erum við að tala um dauða hluti.
Heimildir eru Hagstofa Íslands, skýrslur Hag- og rekstrarnefndar TFÍ, staðtölur almannatrygginga
Með félagskveðju Sigurjón Benediktsson formaður og Börkur Thoroddsen f.h. Hag- og rekstrarnefndar
Mynd












