Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

20.4.2007

Til félagsmanna

Ágætu tannlæknar.

 

Um leið og ég tek undir sumarkveðjur Barkar Thoroddsen til ykkar þá vil ég taka upp þráðinn þar sem Börkur hætti að spinna. Sumarið kemur og veturinn fer, kemur svo aftur  - og þannig gengur það.

Eins er það með okkur mennina. Við komum og förum og sumir segja að við komum aftur.

Um samskipti manna er einnig sömu sögu að segja. Stundum gengur allt vel, allir góðir við alla, í annan tíma eru uppi illindi og hjaðningavíg. Friðartímar eru betri en styrjaldir að áliti flestra.

 

Formaður samninganefndar heilbrigðisráðuneytis hafði samband við félagið og óskaði eftir viðræðum og viðbrögðum við hugmyndum ráðuneytisins um breytingar á endurgreiðslukerfi Tr vegna tannlækninga.  Að sjálfsögðu var þeirri ósk svarað jákvætt. Tannlækningar og tannheilsa hafa verið mikið í fréttum undanfarið og nú hefur verið rætt um þessi mál af meiri sanngirni og meiri þekkingu heldur en nokkurn tímann áður í tíu ára köldi stríði milli tannlækna og heilbrigðisyfirvalda.

 

Vandinn við samskipti tannlækna og heilbrigðisráðuneytis felast í því að tannlæknar eru milliliður í endurgreiðslukerfi sem einhliða er sett upp og stjórnað af greiðslustofnun ráðuneytisins , TR. Tannlæknar reka sínar stofur, þurfa innkomu, og kemur í raun ekki við hvernig sjúklingurinn fjármagnar tannlækningar sínar. Hvort það er með styrkjum frá TR eða alveg úr eigin vasa. Kostnaðurinn er sá sami. Með því að gjaldskrá er frjáls og aðeins háð samkeppnisreglum ættu báðir aðilar, tannlæknir og sjúklingur, að vera í jafnræði. Sjúklingur getur valið sér tannlækni og tannlæknir getur tekið gjald fyrir þjónustu sína sem tannlækni finnst eðlilegt.

 

En heimurinn er ekki svona einfaldur. Heilbrigðisyfirvöld hafa nú rekist illilega á vankanta þessa fyrirkomulags. Tannheilsu fer hnignandi, kerfi tannlæknatrygginga virkar ekki. Kerfið sem ætlað var til að þjóna tryggingaþegum, er ónýtt. Þolendur kerfisins eru óánægðir.

Og spyrja má:  eru tannlæknar ánægðir með stöðu mála?

 

Í þessu ljósi hafa farið fram viðræður, skiptst hefur verið á skoðunum, hugmyndir fram lagðar og málin rædd á fundum með formanni samninganefndar heilbrigðisráðuneytisins. Stjórn félagsins hefur komið að málum og nú er að sjá hvað er í pokanum. Hér er ekki verið að flana að neinu en staða tannlækninga til langs tíma er í húfi. Svo ekki sé minnst á stöðu tryggingaþega . En við tannlæknar erum í þeirri undarlegu stöðu að ræða hagsmuni þriðja aðila , sjúklinga okkar, við heilbrigðisyfirvöld og taka um þá hagsmuni, ákvarðanir. Enginn annar er til þess.

 

Ég bið bræður og systur í starfi að sýna þolinmæði og þrautseigju.          Og traust.           Allt verður þetta hvort eð er á valdi félagsmanna að ákveða þegar og ef eitthvað gerist í þessum viðræðum. Eitthvað sem lýsir í myrkrinu.

 

Með kveðju

Sigurjón Benediktsson


Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «Febrúar 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar