Beint á leiðarkerfi vefsins

Tannlæknafélag Íslands

Fréttir

24.4.2007

Skipbrot einkavæddrar heilbrigðisþjónustu?

 Foreldrar voru þá látnir borga 25% af kostnaði við þessa tannheilsugæslu. Svo illa skemmdar tennur að þyrfti að rótfylla eða jafnvel fjarlægja voru afar sjaldgæfur hlutur hjá börnum þá en nú í dag eru þær nánast daglegt brauð tannlækna. Tvö samhliða kerfi voru í gangi, skólatannlækningar í Reykjavík og Hafnarfirði og einnig sáu sjálfstætt starfandi tannlæknar um sinn yngsta sjúklingahóp af miklum myndarskap. Eftir að opinberar skólatannlækningar voru lagðar niður var ábyrgð á tannheilsu barna og unglinga alfarið varpað yfir á foreldra. Engir samningar hafa verið í gildi milli tannlækna og Tryggingastofnunar ríkissins síðan 1998 og framlög hins opinbera til tannheilbrigðismála hafa lækkað.

Fyrir skömmu átti ég tal við formenn tannlæknafélaganna á Norðurlöndum og skýrði  þeim frá því hvað væri að gerast upp á litla Íslandi. Þeir voru sammála um að ástandið væri ískyggilegt en vildu kenna því um að allar tannlækningar á Íslandi væru einkareknar, þ.e.a.s. ekki væru opinberar skólatannlækningar. Ég hef verið að hugsa  um þessi orð þeirra og það hvers lags ríkisstjórn hefur verið við völd á Íslandi undanfarinn áratug en hún hefur mikið haldið á lofti kostum einkavæðingar og frjálsrar samkeppni.

Við lifum í samkeppnisumhverfi og tannlæknum er bannað með lögum að hafa verðsamráð. Það var ákvörðun hins opinbera að leggja skólatannlækningar niður, og einkvæða alla tannheilsugæslu. Það var ákvörðun hins opinbera, heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra síðastliðinna ára að lækka endurgreiðsluhlutfall vegna tannlækninga markvisst.

Ljóst er að þeir sem hafa haldið um pyngju ríkissjóðs undanfarin ár bera mikla ábyrgð á því ástandi sem nú hefur skapast í tannheilsumálum barna og ungmenna. Þeim hlýtur að hafa verið það ljóst að með því að hækka ekki endurgreiðslur vegna tannlæknaþjónustu, þótt ekki væri nema til að halda í við vísitöluhækkanir, myndu börn þeirra foreldra sem minnstar tekjur hafa ekki skila sér til tannlæknis en þau börn eru einmitt í mestri hættu að fá tannskemmdir, það sýna allrar rannsóknir hvar sem er í heiminum.

Án þess að hugsa sig tvisvar um hafa ríkisstjórnir undangenginna ára brosað í kampinn og lækkað framlög til þessa málaflokks -  með öðrum orðum “sparað” fyrir hönd ríkissjóðs. Sparað á kostnað þeirra sem minnst mega sín í þessi þjóðfélagi. 

Einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu fylgir mikil ábyrgð ekki síst af hálfu hins opinbera. Hér erum við að ræða um grunnheilsugæslu barna okkar og ungmenna en  þessi hópur eru afskaplega lélegur þrýstihópur (getur t.d. ekki kosið).

Eitt er að einkavæða og annað að láta þessa einkavæðingu ganga upp til velferðar fyrir bæði ríki og einstaklinga. Segja má að einkavæðing tannheilbrigðisþjónustunnar hafi verið prófsteinn á það hvort ráðamenn hafi haft vit til að notfæra sér hagkvæmni einkavæðingar án þess að velta kostnaði um of yfir á einstaklingana sjálfa. Mér sýnist að þeim hafi mistekist hrapalega.  Á meðan ekki tíðkast sama kerfi hér og í Bandaríkjunum þar sem fólk kaupir sér heilsutryggingar til að standa straum af útgjöldum vegna heilbrigðismála verður íslenska ríkið að bera fulla ábyrgð, þótt ekki sé nema á heilsugæslu barna og unglinga.

Ég er nokkuð viss um að fæstir tannlæknar og enn þá síður ríkisstjórnin vilji snúa aftur á bak í tíma og stofna ríkisbákn sem sinna ætti tannheilsugæslu barna og unglinga eins og er við lýði á hinum Norðurlöndunum. Forvarnir eru og verða kostnaðarsamar, það vita allir. Með því að hækka endurgreiðsluhlutfall til samræmis við það sem áður var, hefði með einföldum hætti mátt koma í veg fyrir þetta stórslys sem orðið hefur í tannheilsugæslunni. Nú er um að gera að missa ekki móðinn heldur spýta í lófana og bretta upp ermar, fara aftur á byrjunarreit og sinna tannheilsugæslu barna okkar eins og þau eiga skilið.

Ingibjörg S. Benediktsdóttir, tannlæknir, doktor í röntgentannlækningum og varaformaður Tannlæknafélags Íslands.


Auglýsingar

Neyðarvakt - Þarftu að komast til tannlæknis strax?
Finna tannlækni
Umræðuhorn - Málefnalegar og fræðandi umræður um tannlækningar

Viðburðadagatal

 «September 2010» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Mynd

Ánægðir tannlæknar og sjúklingar