Fréttir
16.5.2007
Stjórn bregst við gagnrýni á póstkosninagarfyrirkomulag
Til félagsmanna í TFÍ
Stjórn félagsins vill þakka öllum sem sóttu félagsfund 14. maí s.l. fyrir frábæra mætingu og málefnalega umræðu.
Í kjölfar gagnrýni og umræðu á fundinum hefur stjórn ákveðið að breyta verklagi við póstkosningu um samning TFÍ og SHTR
Nýtt verklag verður sem hér segir og vonandi verður það til þess að félagsmenn treysti betur hlutleysi og réttri meðferð kjörgagna í póstkosningunni.
- Innsiglaður kjörkassi verður fenginn hjá sýslumanni
- Öll svarbréf sem berast félaginu fara beint í kjörkassann og fjöldi þeirra bréfa sem í kassann berast verður skráður hvern dag af framkvæmdastjóra
- Löglærður fulltrúi sýslumanns fær síðan kassann í hendur og opnar hann þann 23. maí þegar öll bréf sem póstlögð eru fyrir klukkan 24:00 þann 21.maí hafa örugglega borist
- Vinnureglur fógeta verða þær að hann telur fjölda sendra atkvæða í póstkosningunni
- Flokkar atkvæði og telur þau svör sem eru jákvæð
- Sé meirihluti þeirra sem taka þátt í póstkosningunni fylgjandi samningnum verður öllum atkvæðum þeirra er skila auðu, ógildu eða eru andvígir samningnum eytt tryggilega og þegar í stað undir umsjón og á ábyrgð fulltrúa sýslumanns
- Sé ekki meirihluti fyrir samningnum samkvæmt póstkosningunni skal öllum atkvæðum þegar í stað eytt tryggilega undir umsjón og á ábyrgð fulltrúa fógeta
- Engir aðrir en fulltrúi fógeta kemur að talningu og eyðingu kjörgagna úr póstkosningunni.
Til að taka af öll tvímæli og vegna athugasemda sem borist hafa stjórn vegna framkvæmdar póstkosningar er rétt að taka fram eftirfarandi:
1. Verði samningur felldur er öllum kjörgögnum eytt undir umsjón og á ábyrgð fulltrúa Sýslumannsins í Reykjavík.
2. Verði samningur samþykktur í póstkosningunni með meirihluta þeirra er greiða atkvæði þá er hverjum og einum sem samþykkti samninginn heimilt að segja sig af samningnum hjá TFí fram að 1. júní n.k.. Eftir 1. júní gildir eins mánaðar uppsagnar frestur.
3. Verði samningur samþykktur er sérhverjum félagsmanni sem greiddi atkvæði á móti samningnum, skilaði auðu eða ógildu eða tók ekki þátt í póstkosningunni heimilt að skrá sig á samninginn svo fremi það fari í gegnum Tannlæknafélag Íslands eins og kveðið er á í samningnum. Engin tímamörk eru á því að segja sig á samninginn meðan hann er í gildi.
Með bestu kveðjum
Stjórn TFÍ
Tannlæknafélags Íslands
Síðumúla 35
108 Reykjavík
Sími: 575-0500
Velkomin/n á vefsíðu TFÍ www.tannsi.is
Mynd












